Þú ert ekki skráður inn
Í febrúarmánuði ár hvert er hin alþjóðlega leikfangasýning haldin í Nürnberg en þangað koma stærstu fyrirtækin í bransanum og kaupendur á Evrópusvæðinu og jafnvel víðar. Hægt er að sjá fleiri myndir í myndasafninu.
Horizon Hobby voru á staðnum og sýndu nýja Sukhoi sem hönnuð er í kringum nýja DA85 mótorinn.
Multiplex sýndi nýjar vélar úr ELAPOR eins og svo margar aðrar frá þeim.
Hobbico sýndi nokkrar nýjar vélar, eins og þennan litla Beechcraft og nýju Reactor tvíþekjuna en einnig 38% Extra sem kemur loksins á markaðinn í næsta mánuði. Einnig var ný vörulína af litlum rafmagnsþotum kynnt. T10CP sem er nýja 10 rása 2.4GHz stýringin frá Futaba var einnig kynnt.
GWS var að kynna nýjar rafmagnsþotur.
Nýtt fyrirtæki, frá Kína auðvitað, Fly Hobby var þarna að kynna sig en þeir munu sérhæfa sig í stærri gerðinni af rafmagnsþotum úr frauði, en þær þykja mjög flottar. Hugsaðar fyrir 5S og 6S lipo rafhlöður. Mig-29, Hawk, F-86 og F-22 með vænghaf á bilinu 140-150 cm.

Einnig var þessi þessi 42% Sukhoi í Red Bull litum frá nýjum söluaðila sem lætur framleiða þær fyrir sig í austurlöndum fjær, þó ekki Kína og þykja mjög flottar. Kynningarverð €2500.
MVVS var að sýna nýja mótora, 40cc, 80cc og 152cc.
Sebart kynnti tvær nýjar vélar til leiks, Shark og Python Pitts. Einnig sýndu þeir Angel í Shark útfærslu.
Graupner var með nokkra spennandi hluti eins og þessi hönnun á innanhúsvél en hún birtist fyrst snemma árs 2007 og núna hefur Graupner tekið af skarið og skellt henni í framleiðslu. Spaðinn er fyrir miðri vél og er með skiptiskrúfu þannig að vélin er mjög lipur og skemmtileg. Einnig var Graupner með þotur á svæðinu en þeir munu vera að selja Airworld framleiðslu.

Að sjálfsögðu var Kínahverfi á sýningunni 

Athygli vakti þetta módel sem kallað er Blade 2 frá Aero-Naut en það hefur verið mælt á 250 km hraða og er knúið áfram af tveimur burstalausum viftum.
Kínverskur framleiðandi sýndi fjölblaða spaðahausa.
Athygli vakti þessa 90 stærðar þyrla en hún mun vera nærri kíló léttari en sambærilegar þyrlur.
Hitec kynnti nýju 7900 seríuna af stafrænum servóum en hún mun leysa 5900 seríuna af hólmi en einnig voru þeir með nokkur vélmenni.
Síðast en ekki síst þá fékk þessi bás einna mestu aðsóknina á sýningunni þó margir séu enn að reyna að ná tengingunni við leikföngin sem voru á sýningunni...
Myndir © Ziv Bitton
Offline
Offline