Módelspjallið - flugmodel.net

Þú ert ekki skráður inn

#101 10-01-2010 16:02:48

Gaui
Smíðameistari
Frá: Eyjafirði
Skráður: 28-11-2004
Póstar: 1531
Vefsíða

Re: Smíðað á Grísará

Jæja, enn er smíðað á Grísará. 

Sveinbjörn keypti sér einn Tiger 60 frá Usa, en fyrir einhvern misskilning kom bara hluti sendingarinnar.  Hinn hlutinn hefur líklega endað í aðalstöðvum SAS í Kaupm.h.  Það er samt ekki ástæða til að byrja ekki á módelinu:

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1263142668.jpg

Mumma gengur vel með Fokkerinn og hér er hann að vanda sig við að sprauta KR litina á stélið.  Maður sér að hann er að vanda sig af þvi það kemur fram í einbeitingarsvipnum á andlitinu:

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1263142737.jpg

Rúnar keik við og límdi síðasta stikkið í Stikkaravænginn.   

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1263142805.jpg

Óli Njáll hélt áfram með sinn Stikk: nú var það stélið sem fór á skrokkinn og seinna um kvöldið balsatoppurinn ofan á hann.  Þetta skotgengur hjá kallinum.

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1263142875.jpg

Árni er ennþá að dúlla sér við Fokker vænginn og hér er hann að setja saman neðra skinnið á vængendana. 

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1263142918.jpg

Og svo fór Mummi að klæða Fokkerskrokkinn með hvítu Solartexi.

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1263142964.jpg

Síðast breytt af Gaui (10-01-2010 16:03:37)


Alltaf á ég að gera allt -- og aldrei má maður ekki neitt!

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði

Offline

 

#102 23-01-2010 09:52:48

Árni H
Dellukarl
Skráður: 07-10-2004
Póstar: 521
Vefsíða

Re: Smíðað á Grísará

Nokkrar myndir frá síðasta fimmtudagi - allt í rólegheitum í sveitinni en að Grísará fauk balsinn sem fyrr.
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1264243386.jpg
Spekúlerað í D.VIII

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1264243487.jpg
Önnum kafnir flugmódelmenn (Myndin ætti eiginlega að heita: Hvar er Sveinbjörn?)

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1264243629.jpg

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1264243684.jpg
Flugstjórnarklefarnir mátaðir af tveimur umsækjendum um stöður flugmanna hjá Jasta 6. Annar virðist hokinn af reynslu og tók öllu með stóískri ró en hinn fölnaði svolítið þegar hann sá hvaða vinnuumhverfi var í boði wink

Lífið gengur sem sagt sinn vangagang hjá "The Fokkers" að Grísará.

Kveðjur,
Árni Hrólfur

Síðast breytt af Árni H (23-01-2010 09:56:02)

Offline

 

#103 24-01-2010 08:48:48

Gaui
Smíðameistari
Frá: Eyjafirði
Skráður: 28-11-2004
Póstar: 1531
Vefsíða

Re: Smíðað á Grísará

Smá meira frá fimmtudeginum.

Siggi frá Grenivík kom og byrjaði að setja saman Decathlon:

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1264326418.jpg

og Rúnar pússaði vænginn sinn:

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1264326460.jpg

Svo læddist Krían inn í skúr, sem hún veit hún má ekki) og Mummi verðlaunaði hana fyrir ódæðið með því að gefa henni kex:

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1264326519.jpg


Alltaf á ég að gera allt -- og aldrei má maður ekki neitt!

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði

Offline

 

#104 24-01-2010 09:41:36

Gunnarb
Dellukarl
Skráður: 20-05-2009
Póstar: 116

Re: Smíðað á Grísará

Asskotans dugnaður er þetta í ykkur.  Afrek gærdagsins hjá mér var að klastra saman skurðarboga til að skera frauðvængi/skrokka.

Annars smá forvitni. Það sést í bakgrunni bæði í skrokk og væn á dökkgrænni vél ... hvaða vél er það?

Kveðja,

-Gunnar

Offline

 

#105 24-01-2010 19:25:57

jons
Dellukarl
Frá: Akureyri
Skráður: 01-09-2008
Póstar: 82
Vefsíða

Re: Smíðað á Grísará

Dökkgrænn vængur og hvítur (ómálaður) skrokkur = Fokker D.VIII


Jón Stefánsson
Akureyri

Offline

 

#106 10-03-2010 22:30:14

jons
Dellukarl
Frá: Akureyri
Skráður: 01-09-2008
Póstar: 82
Vefsíða

Re: Smíðað á Grísará

Eins og sagt hefur verið frá áður höfum við svartan hjálparkokk í skúrnum. Á hans herðum hvílir sú skylda að stela kexi frá svöngum módelmönnum, naga vandlega mælda og sagaða viðarbita sem óvarkárir módelmenn leggja frá sér á glámbekk, gleypa smáhluti sem falla til - já og stela límtúbum ef menn gerast svo djarfir að leggja þær frá sér þar sem þær eiga ekki að vera.

Glöggir lesendur muna vafalaust eftir nýlegri mynd af eftirlitshundinum við hefðbundin skyldustörf.

Við flettingu í myndaalbúminu fann ég aðra mynd af surtinum, aftur að gera það sem hann er góður í - að tefja Árna við smíðarnar.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1268263632.jpg

Mummi.


Jón Stefánsson
Akureyri

Offline

 

#107 11-03-2010 18:01:52

Kjartan
Dellukarl
Skráður: 21-11-2008
Póstar: 65

Re: Smíðað á Grísará

Flottir

Magnað að hafa svona aðstoðarmann

Kjartan

Offline

 

#108 25-04-2010 22:38:59

Gaui
Smíðameistari
Frá: Eyjafirði
Skráður: 28-11-2004
Póstar: 1531
Vefsíða

Re: Smíðað á Grísará

Altaf er eitthvað smíðað á Grísará og hér er Óli Njáll að byrja að líma saman væng á Das Ugly Stik:

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1272235098.jpg

Örfáum augnablikum seinna er vinstri vænghelmingur nokkurn vegin tilbúinn:

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1272235136.jpg


Alltaf á ég að gera allt -- og aldrei má maður ekki neitt!

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði

Offline

 

#109 23-05-2010 12:10:34

Árni H
Dellukarl
Skráður: 07-10-2004
Póstar: 521
Vefsíða

Re: Smíðað á Grísará

Það er smíðað á fullu að Grísará en einhverra hluta vegna hafa myndatökur orðið svolítið útundan upp á síðkastið. Hér er þó ein frá því um daginn. Sá fáheyrði atburður gerðist nefnilega að rafmagnsvél datt í gegnum nálaraugað og komst inn í hið allra helgasta. Já, það er víst auðveldara fyrir úlfalda að komast í gegnum nálarauga en rafmagnsvél að komast inn í skúrinn að Grísará!

Svona fyrirbæri vakti skiljanlega mikla athygli meðal bensínhausanna í FMFA eins og sjá má á eftirfarandi mynd. Allir þurftu að pota, snerta, toga, strjúka og snúa þar til eigandanum var nóg boðið og fór með hana aftur.

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1274616530.jpg

Kv,
Árni H

Offline

 

Board footer

Powered by PunBB
© Copyright 2002–2005 Rickard Andersson