Módelspjallið - flugmodel.net

Þú ert ekki skráður inn

#11 03-05-2009 09:49:08

Böðvar
Dellukarl
Frá: Hafnarfjörður
Skráður: 17-04-2004
Póstar: 282

Re: Vöfflumótið á Hamranesi

Björn G Leifsson skrifaði:

Ég missti mér til sárrar armæðu af vöfflunum í dag. Þegar ég loksins komst úteftir voru allir farnir.

Hvenig er það? Bragðast þær jafn vel þegar það er ekki Lister-straumur á vöfflujárninu???

Þegar við mættum út á Hamranes um tíu leitð var Eggert þegar búinn að þrífa allt húsið hátt á lágt kvöldið áður, Þannig að sest var að vöffluáti um leið og men mættu.

Og segir svipur vöffluunnenda ekki allt sem segja þarf hverni þær brögðuðust?
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1241343830.jpg
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1241343852.jpg
uuuummmmm nammi namm
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1241343902.jpg
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1241344396.jpg
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1241344434.jpg
Það virðist vera sama hvaðan gott rafmagn kemur vöfflurnar bragðast alltaf jafn vel gæti Einar verið að segja og við vorum allir sammála því.
__________________________
Bestu kveðjur
Böðvar

Síðast breytt af Böðvar (03-05-2009 10:10:08)

Offline

 

#12 03-05-2009 10:09:24

Gunni Binni
Dellukarl
Frá: Reykjavík
Skráður: 07-04-2008
Póstar: 359

Re: Vöfflumótið á Hamranesi

Björn G Leifsson skrifaði:

Gunni-Binni

Hér er smá kennslumyndband sem sýnir hvernig svona frauðflygildi eru notuð:

Ég veit að umræðan um vöfflumótið er komin svoldið á skjön en ég gat ekki stillt mig um að prófa frauðflygildið í fyrsta sinn í rokinu og rigningunni í gærkveldi.
Átti ég í fullt í fangi með að halda henni á lofti og hefði krafturinn mátt vera meiri, en þó var gaman að fljúga þessu.

Kveðja
Gunni Binni

Offline

 

#13 03-05-2009 14:14:14

Eysteinn
Dellukarl
Frá: Hafnarfirði
Skráður: 10-01-2009
Póstar: 291

Re: Vöfflumótið á Hamranesi

Veðurstofan gefur út viðvörun!!!! Já sæll smile

Það kom til mín í dag veðurfræðingur upp á Hamranesflugvöll og sagði mér frá tilraun sem hann er að fara að framkvæma. Nota fjarstýrtflugmódel til veður athugana hér á landi. Flugmódelið á að fljuga sjálft eða með hjálp GPS í ákveðna hæð þar sem mælingar verða framkvæmdar.
Þessi ágæti veðurfræðingur hafði mikinn áhuga á að komast í kynni við okkur hjá Þyt.  Ég bennti honum á Fréttavefinn og að hann væri alltaf velkominn til okkar.

Spurning hvort þetta áhættuflug hafi komið þessum manni í kynni við okkur.

Kveðja,
Eysteinn


I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.

Offline

 

Board footer

Powered by PunBB
© Copyright 2002–2005 Rickard Andersson