Módelspjallið - flugmodel.net

Þú ert ekki skráður inn

  • Heim
  •  » Fréttir
  •  » 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

#1 10-08-2009 00:18:11

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5925
Vefsíða

10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Þá er flugkoman á Melgerðismelum að baki og fór hún vel fram í alla staði og án óhappa.

Frekar stífur vindur var á föstudaginn og ekki var mikið flogið en nokkrir ofurhugar tóku þó flug seinnipart dags og um kvöldið. Mætingin var fín en spurning hvort veðurspáin sem var ekkert alltof álitleg fyrir laugardaginn hafi haft áhrif. Svo rannlaugardagurinn upp bjartur og fagur og fyrstu menn voru komnir í loftið rétt fyrir kl.9 og svo var stanslaust flogið fram eftir degi.

Að venju voru þarna módel af öllum stærðum og gerðum og meðal annars var þrem þotum og einum túrbóprop flogið en óhætt er að segja að sjaldan hafi verið jafn mikið fjör í þotubransanum og um helgina. Gunni og MX2 tóku fínar rispur, Cardinal flugsveitin herjaði á Melana og næsta nágrenni, Guðjón sýndi loftfimleika á Pub og Jón tætti upp loftrýmið með Túrbó Raven svo stiklað sé á örfáu af því sem sást um helgina.

Vöfflurnar og kaffið klikkuðu ekki frekar en fyrri daginn og um kvöldið tók svo hið hefðbundna grill við og rann það ljúfenglega ofan í viðstadda sem skemmtu sér svo vel fram eftir kvöldi.

Sunnudagurinn rann svo upp með enn betra veðri og var mikið flogið fram eftir degi.

Módelmenn voru ánæðir með flugkomuna og þótti hún takast vel upp, það sást vel að sífellt fleiri og fleiri eru komnir á 2.4 Ghz og auðveldar það tíðnimál.

Um átján myndir frá flugkomunni skiluðu sér á myndastrauminn. Hægt er að sjá myndir frá helginni í myndasafni Fréttavefsins, bæði af módelum á jörðinni og svo á flugi og svo er hér ein panóramamynd af fluglínunni.


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#2 10-08-2009 11:36:00

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5925
Vefsíða

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Flugmyndir fóru í smá hlé fram á kvöld.


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#3 10-08-2009 14:23:29

maggikri
Formaður
Skráður: 01-07-2005
Póstar: 1520

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Góðan dag. Þakka kærlega fyrir okkur norðanmenn.  Gleymdist að þakka stjórn FMA fyrir flugkomuna.  Er því komið til skila núna.  Hérna koma siðan fullt af myndbandsskotum á Youtube og er hér það fyrsta og síðan raðast þau inn í rólegheitum.  Þetta eru allt óklippt video beint af skepnunni.

kv
MK

Síðast breytt af maggikri (10-08-2009 14:24:16)

Offline

 

#4 10-08-2009 14:25:59

maggikri
Formaður
Skráður: 01-07-2005
Póstar: 1520

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Offline

 

#5 10-08-2009 15:52:19

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5925
Vefsíða

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Úhhh, hreyfimyndir. smile


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#6 11-08-2009 00:00:03

Haraldur
Rafvæddur
Frá: Kópavogur
Skráður: 20-05-2005
Póstar: 575

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249947342.jpg
  Allt í röð og reglu, vel pakkað!

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249947371.jpg
  Koma svo, Melgerðismelar!

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249947402.jpg
  Oooh, mig langar í svona.

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249947422.jpg
  Má ég prófa, má ég prófa!

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249947447.jpg
  Jæja, ætli þetta verði í lagi núna?

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249947468.jpg
  Nei, sjáðu þessa. Noj, það er kall í þessari.
  Sko, þetta er svona stríðsflugvél og hún fer allveg rosalega hratt.

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249947890.jpg
  Hvað er svona spennandi?

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249947760.jpg
  Flugtog gert klárt.

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249948077.jpg
  Allir pinnar úti.

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1249948217.jpg
  Grillað á grillinu í þessum eðalvagni, sem sagan segir að Björgúlfur eldri hafi átt.


Takk fyrir mig Akureyringar, frábær helgi í frábærum félagskap ykkar norðanmanna.
Alltaf gaman að sækja ykkur heim.

Haraldur.

Síðast breytt af Haraldur (11-08-2009 00:01:16)


Á fljúganda flugi.

Offline

 

#7 11-08-2009 07:24:28

maggikri
Formaður
Skráður: 01-07-2005
Póstar: 1520

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir











Síðast breytt af Sverrir (11-08-2009 10:20:27)

Offline

 

#8 11-08-2009 11:01:56

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5925
Vefsíða

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Nokkrar myndir komnar inn hjá Flugmódelfélagi Akureyrar >
http://www.flickr.com/photos/fmfa/sets/ … 998106996/
eða
http://new.flugmodel.is/wp-content/plug … 1998106996

Síðast breytt af Sverrir (11-08-2009 15:21:10)


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#9 11-08-2009 15:44:27

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5925
Vefsíða

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Myndir frá Einari Páli má sjá hér > http://myndir.frettavefur.net/thumbnails.php?album=150


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#10 12-08-2009 09:59:29

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5925
Vefsíða

Re: 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Fleiri vídeó frá Magga.












An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 
  • Heim
  •  » Fréttir
  •  » 10.08.2009 - Melgerðismelar 2009 - Samantekt og myndir

Board footer

Powered by PunBB
© Copyright 2002–2005 Rickard Andersson