Módelspjallið - flugmodel.net

Þú ert ekki skráður inn

  • Heim
  •  » Fréttir
  •  » 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

#1 05-09-2009 18:43:24

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5927
Vefsíða

05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Eftir góða næturrigningu sem hreinsaði loftið og svæðið þá rann upp Ljósanæturdagurinn mikli. Veðrið var mjög gott, nánast logn og örfáir dropar kláruðu að koma niður fyrsta klukkutímann af flugkomunni. Sigurjón Valsson kom á TF-UFO kl.13 og hélt listflugsýningu fyrir viðstadda og var hún mjög flott. Veðrið hélst svo þurrt fram til ca. 15 en þá fóru að koma skúrir með nokkuð reglulegu millibili. Síðustu menn yfirgáfu svo svæðið um 1800.

Mikið var flogið og skemmtu viðstaddir sér vel. Góður rómur var gerður að veitingunum og var ekki mikið afgangs af þeim 60 samlokum og 120 kexkökum sem í boði voru. wink

Myndir má sjá í myndasafni FMS.

Síðast breytt af Sverrir (05-09-2009 21:58:45)


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#2 05-09-2009 18:43:35

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5927
Vefsíða

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Nokkrar myndir frá herlegheitunum. smile

Guðni einbeittur á svip.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9839.jpg

Kátasti maður sunnan Holtavörðuheiði.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9840.jpg

Torfærutröllið!
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9846.jpg

MX klikkar ekki.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9851.jpg

Árni festi atburði dagsins á minniskubb.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9852.jpg

Tiger Moth er ansi flottur og skalalegur.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9859.jpg

Smá dýfa...
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9867.jpg

Stoltur smiður og eigandi.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9869.jpg

Fullskala Tiger Moth leit einnig við í dag.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9871.jpg

Frímann tók Yak syrpu.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9900.jpg

Spjallað.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9901.jpg

Meira spjall.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9913.jpg

Fyrri hluta dags var þetta ekki óalgeng sjón.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9914.jpg

MX á niðurleið.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9946.jpg

Meistari Sigurjón kom á TF-UFO og sýndi listflug.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9981.jpg

Upp, upp mín sál.
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_9988.jpg

Ætli þessi kjósi X-D?
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_10005.jpg

Maggi að njósna fyrir framtíðarverkefni?
http://modelflug.net/myndir/albums/upload/2009_09_05_Ljosanott/IMG_10008.jpg

Síðast breytt af Sverrir (05-09-2009 22:47:55)


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#3 05-09-2009 18:49:50

Gunni Binni
Dellukarl
Frá: Reykjavík
Skráður: 07-04-2008
Póstar: 360

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Frábært framtak hjá FMS-mönnum eins og venjulega og ég verð að lýsa aðdáun minni á Magga sem fór eldsnemma á fætur til að smyrja ofan í liðið smile
Kveðja
Gunni Binni

Offline

 

#4 05-09-2009 19:06:05

Guðjón
Dellukarl
Frá: Kópavogur / Þytur
Skráður: 05-06-2008
Póstar: 740

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Takk fyrir mig og daginn


Kv. Guðjón Bergmann
-------------------------
Ég hef áhuga á fljúgandi furðuhlutum, sérstaklega þeim fjarstýrðu

Offline

 

#5 05-09-2009 20:15:23

Páll Ágúst
Dellukarl
Frá: Reykjavík
Skráður: 01-05-2009
Póstar: 573

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Já!, frábær dagur og ég vil þakka mönnum hjá FMS fyrir að gera þetta að skemmtilegum degi.
Tók tuttuguogníu myndir og ætla að setja smá af þeim hér inn, ætlaði að taka fleiri, var bara svo mikið að fylgjast með einhverju smile. Veit að Maggi og Eysteinn tóku video og vonandi koma þau hér inn smile Hér koma mínar myndir:

Tiger Moth kom alla leið frá Akureyri
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1252176958.jpg

Guðjón eitthvað að laga vindpokann big_smile
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1252177058.jpg

Eysteinn tók video flug
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1252177201.jpg

Árni að hugsa á meðan hann dælir bensíni á Ugly Stick-inn
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1252177296.jpg

Af hverju er þessi mynd?  (Verðlaun fyrir rétt svar big_smile )
    http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1252179876.jpg

Boðið var upp á veitingar í svörtu og hvítu lol
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1252179938.jpg

En svo fór eitt hjólið neðan af TF-JET sad
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1252180145.jpg

Þrátt fyrir það sem ég og Guðjón köllum "smá happenings" var þetta góður dagur.
Og núna er það bara að setja skíðin undir smile Ekki alveg strax big_smile Enn og aftur takk fyrir góðan dag FMS.


Allt veður er gott veður...svo lengi sem hægt er að fljúga í því.

Flugmódel á Facebook

Offline

 

#6 05-09-2009 20:21:35

Páll Ágúst
Dellukarl
Frá: Reykjavík
Skráður: 01-05-2009
Póstar: 573

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Ein mynd gleymdist sem er af fyrstu vélunum sem mættu á svæðið smile

  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2009/1252182075.jpg


Allt veður er gott veður...svo lengi sem hægt er að fljúga í því.

Flugmódel á Facebook

Offline

 

#7 05-09-2009 20:34:01

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5927
Vefsíða

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Páll Ágúst skrifaði:

En svo fór eitt hjólið neðan af TF-JET sad

Dónaskapur er þetta að taka mynd upp í stélið á greyinu. wink

Páll Ágúst skrifaði:

Af hverju er þessi mynd? (Verðlaun fyrir rétt svar big_smile )

Mynd af hinni margrómuðu vél TF-JET.

Síðast breytt af Sverrir (05-09-2009 20:35:43)


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#8 05-09-2009 21:08:27

Guðjón
Dellukarl
Frá: Kópavogur / Þytur
Skráður: 05-06-2008
Póstar: 740

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

sorry en ég sé bara enganvegin tf jet út úr þessari mynd


Kv. Guðjón Bergmann
-------------------------
Ég hef áhuga á fljúgandi furðuhlutum, sérstaklega þeim fjarstýrðu

Offline

 

#9 05-09-2009 21:31:42

Eysteinn
Dellukarl
Frá: Hafnarfirði
Skráður: 10-01-2009
Póstar: 292

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Páll Ágúst skrifaði:

Eysteinn tók video flug
  http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/ … 177201.jpg

Já, hérna er það Páll.   Það heppnaðist mjög vel vídeó flugið, myndgæðin eru reyndar ekki eins góð eftir að maður er búinn að seta það inn á jú tjúp;)



Ég vil þakka ykkur fyrir skemmtilegan dag wink sjáumst sem allra mest í framtíðinni.

Kveðja,
Eysteinn


I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.

Offline

 

#10 05-09-2009 22:17:21

Páll Ágúst
Dellukarl
Frá: Reykjavík
Skráður: 01-05-2009
Póstar: 573

Re: 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Sverrir skrifaði:

Ekki svo, hvað er í verðlaun. big_smile

Það er í vinnslu big_smile


Allt veður er gott veður...svo lengi sem hægt er að fljúga í því.

Flugmódel á Facebook

Offline

 
  • Heim
  •  » Fréttir
  •  » 05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Board footer

Powered by PunBB
© Copyright 2002–2005 Rickard Andersson