Módelspjallið - flugmodel.net

Þú ert ekki skráður inn

  • Heim
  •  » Spjallið
  •  » 40 ára afmælisflugsýning Þyts - 10.júlí 2010

#1 16-07-2010 23:57:31

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5911
Vefsíða

40 ára afmælisflugsýning Þyts - 10.júlí 2010

40 ára afmælisflugsýning Þyts tókst mjög vel upp þrátt fyrir að veður hafi ekki verið 100%. Ótrúlegur fjöldi gesta mætti á svæðið og er talið að 2-3000 manns hafi verið á svæðinu þegar mest var. Röðin náði langt upp í hverfi og allar veitingarnar kláruðust í klúbbhúsinu, þvílík var eftirspurnin. Öflug fjölmiðlaumfjöllun hefur sjálfsagt átt sinn þátt í þessum fjölda ásamt veggspjöldum sem dreift var út um bæ.

Sýningin hófst kl.13:00 þangað til gera þurft stutt hlé vegna rigningar rétt fyrir kl.14. Svo var haldið áfram af fullum krafti til að verða hálf fjögur þegar lengra skúratímabil gerði og lokaði Sigurjón Valsson þá sýningunni með listflugi á TF-UFO.

Ali var vel tekið af gestum og mátti heyra þá súpa hveljur og ásamt margs konar öðrum búkhljóðum þegar Opus Colt fór að taka 20+ G beygjur. Ekki vakti flugið á Eurosport 3D minni athygli en það er hreint ótrúlegt að sjá hana hanga rétt yfir jörðinni. Drepa á mótor og svifa til lendingar atriðið á MX2 vakti líka verðskuldaða athygli og gaman var að sjá Viperjet í höndunum á Ali. Einnig flaug hann í stríðsfugla hólfinu, Dr.VII og tókst það engu verr upp.

Eftir að flugsýningin kláraðist þá fór töluverður tími í að svara spurningu forvitinna áhorfenda. Eftir því sem leið á daginn fækkaði þó í hópnum og þegar loks stytti upp voru bara örfáir eftir á svæðinu. Ali rifjaði þá upp gömul kynni við Turbo Raven sem Jón Erlends á tók eitt svakalegasta flug sem sést hefur norðan Alpanna! Eysteinn á vídeó af því og fáum við eflaust að sjá það fljótlega.

Eins og áður hefur verið sagt þá voru aðstæður ekki alveg 100% á sjálfan flugsýningardaginn en bæði föstudagurinn og sunnudagurinn bættu fyrir það með alvöru íslenskri sumarblíðu. Ég leyfi mér því að blanda saman myndum frá þessum þrem dögum því eins og þeir félagar orðuð það svo skemmtilega þá fóru þeir í dögun að heiman og komu svo heim undir kvöld, á Íslandi var bjart þess á milli.

Langar svo að þakka Einar Pál og öðrum sem komu að sýningunni, þetta gerist jú ekki af sjálfu sér og var undirbúningur hafinn fyrir nærri ári síðan þegar Ali var bókaður og síðan hefur mikil vinna farið fram bak við tjöldin. Nú er bara spurning hvað við gerum á 50 ára afmælinu!?  wink

Kassinn sem gripirnir komu í.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4045.jpg

„Business“ endinn á Eurosport 3D.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4060.jpg

Hún er flott á flugi!
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4216.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4237.jpg

Vissara samt að fara varlega að henni!
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4277.jpg

Og lítur svo sem ekkert illa út svona!
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4314.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4367.jpg

Neðar komst hún ekki...
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4322.jpg

RÚV tók viðtal við Ali.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4281.jpg

Held ég kalli þessa: „Myndatökumaðurinn sem missti af fjörinu!  wink
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4381.jpg

Opus Colt, engin skyldleiki við Aircore Colt.  wink
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4404.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4421.jpg

Eitthvað spennandi þarna?
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4433.jpg

Viperjet fékk að kynnast nýjum hlutum.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4903.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4845.jpg

Afhverju er himininn grænn? spurði Baddi.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4851.jpg

Þetta er betra!
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4873.jpg

Tekið í Fokker Dr.I
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4523.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4571.jpg

Stöð 2 mætti líka til að taka viðtal.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4646.jpg

Þessi myndatökumaður náði mestu af fjörinu, samt ekki öllu.  wink
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4735.jpg

MX2 hvað...
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4752.jpg

Svo voru þeir félagar sendir í flugtúr á Cub.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_4986.jpg

Og Cap.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5090.jpg

Hluti af gestunum.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5129.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5196.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5197.jpg

Böðvar í góðum gír tilbúinn við spilið.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5140.jpg

Hákon kom frekar óvænt.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5165.jpg

Sýningarflug á Cub-um.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5193.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5195.jpg

Sýningarflug á Eurosport 3D.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5139.jpg

Sýningarflug á MX2.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5184.jpg

Sýningarflug á Viperjet.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5192.jpg

Svo þurfti að flýja inn undan rigningunni og svara ótal spurningum.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5207.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5215.jpg

Hluti af módelunum sem var til sýnis.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5199.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5239.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5228.jpg

Gæslan leit við á sunnudeginum.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5258.jpg

Vígalegir Fréttavefsmenn.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5272.jpg

Katana á flugi.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5284.jpg

Ali fékk skjöld til minningar.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5288.jpg

http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5287.jpg

Gestirnir með hluta sýningarstjórnar Þyts.
http://frettavefur.net/myndirModelmanna/albums/uploadMyndir/2010_Ali_visit/IMG_5298.jpg


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Offline

 

#2 17-07-2010 22:12:50

Gunnarb
Dellukarl
Skráður: 20-05-2009
Póstar: 116

Re: 40 ára afmælisflugsýning Þyts - 10.júlí 2010

Flott samantekt Sverrir

Offline

 

#3 19-07-2010 21:05:18

Eysteinn
Dellukarl
Frá: Hafnarfirði
Skráður: 10-01-2009
Póstar: 291

Re: 40 ára afmælisflugsýning Þyts - 10.júlí 2010

Sverrir skrifaði:

Eftir því sem leið á daginn fækkaði þó í hópnum og þegar loks stytti upp voru bara örfáir eftir á svæðinu. Ali rifjaði þá upp gömul kynni við Turbo Raven sem Jón Erlends á tók eitt svakalegasta flug sem sést hefur norðan Alpanna! Eysteinn á vídeó af því og fáum við eflaust að sjá það fljótlega.[/url]

Já, hérna kemur myndbandið. Það er bara frábært að sjá þennan mann fljúga!



Kveðja,
Eysteinn.


I’ve learned so much from my mistakes…
I’m thinking of making a few more.

Offline

 

#4 19-07-2010 21:32:39

Guðjón
Dellukarl
Frá: Kópavogur / Þytur
Skráður: 05-06-2008
Póstar: 735

Re: 40 ára afmælisflugsýning Þyts - 10.júlí 2010

Hehehe.þ. hannn kom okkur í svo opna skjöldu... 2:25

Flottmyndband annars smile

Svo er maðurinn svo sultuslakur og svalur að í hvert sinn sem maður sér hann þá er það svona.. Voó...

Síðast breytt af Guðjón (19-07-2010 21:36:19)


Kv. Guðjón Bergmann
-------------------------
Ég hef áhuga á fljúgandi furðuhlutum, sérstaklega þeim fjarstýrðu

Offline

 
  • Heim
  •  » Spjallið
  •  » 40 ára afmælisflugsýning Þyts - 10.júlí 2010

Board footer

Powered by PunBB
© Copyright 2002–2005 Rickard Andersson