Módelspjallið - flugmodel.net

Þú ert ekki skráður inn

#1 19-02-2007 07:35:03

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5927
Vefsíða

19.02.2007 - Getur bíll flogið?

Stórt er spurt! Enn stærri spurning væri kannski hvort hægt væri að nota umræddan bíl sem geimferju? Það var einmitt umfjöllunarefni Top Gear þáttar sem var sýndur á BBC í gærkvöldi.

Bílinn sem umræðir er hin sífallegi Robin Reliant sem allir elska.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171874072.jpg

Eins og einhverjir eflaust vita þá voru nokkrir Íslendingar staddir í ríki hennar hátignar síðasta sumar og áttu þar kost á að fylgjast með því þegar 1/4 skala módeli af téðri geimferju var flogið... svifið... lent! Guðjón fékk það mikilvæga hlutverk að vera flugstjóri á dráttarvélinni en ástæðan fyrir fluginu þetta kvöld var sú að einn af eldflaugahönnuðunum leit við til að sjá módelið. Óhætt er að segja að það hafi verið mjög sérstakt að sjá bílinn „fljúga“ og hvað þá að sjá allt umstangið í Top Gear þættinum sem sýndur var í gærkvöldi.

Íslandsvinurinn Steve Holland var fenginn til að sjá um flugið á bílnum, hann smíðaði einnig vængina á hann og sá um fjarstýrimálin.

Eldflaugin og hjálparflaugarnar sem voru notaðar voru með um 8 tonna kný og er þetta stærsta einkaframkvæmda(non-commercial) eldflaugarskotið í Evrópu. Ferlið byrjaði mjög vel með flugtaki og stuttu seinna aðskildu hjálparflaugarnar sig frá hersingunni og Robin Reliant sveif enn hærra upp í himinhvolfið. Hér fór hins vegar að færast fjör í leikinn því ekki vildi bílinn aðskilja sig frá aðal eldflauginni. Upphófst þá ein af þeim lóðréttari lendingum sem um getur og lauk henni með ágætis sprengingu þegar móðir jörð var eitthvað að flækjast fyrir á seinni stigum „lendingarinnar.“

Það var miður að aðskilnaðurinn tókst ekki því það hefði verið mjög gaman að sjá Steve við stjórnvölinn á geimskutlunni. Ef eitthvað er að marka flugið á 1/4 skala módelinu þá hefði það ekki síður orðið skemmtilegt til áhorfs.

Þátturinn er sá fjórði í níundu seríu og ef það er sama sería og Skjár 1 er nýbyrjaður að sýna þá má búast við því að þessi þáttur sjáist á skjáum landsmanna sunnudagskvöldið 11.mars nk.

Leifur sýnir afkvæmið stoltur á svip.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171851294.jpg

Bílinn tengdur við Titan dráttarvélina.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171850464.jpg

Og af stað var haldið.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171850521.jpg

Þetta líka fína klifur.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171850568.jpg

Og meira að segja loftfimleikar.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171850607.jpg

Menn skemmtu sér hið besta yfir þessu, Skjöldur, Steven, einn af eldflaugahönnuðunum og Leifur. Maður sá Excel í nýju ljósi það kvöld.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171851349.jpg

Guðjón og Steve, einbeitingin skín af þeim!
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171851390.jpg

Næsta ferð, Gummi vildi vera viss um að missa ekki af smáatriðunum.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171851456.jpg

Á niðurleið.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171850626.jpg

Meiri niðurleið.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171850655.jpg

Hér má sjá full skala vængina í öllu sínu veldi.
http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2007/1171850676.jpg


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Online

 

#2 21-02-2007 01:25:38

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5927
Vefsíða

Re: 19.02.2007 - Getur bíll flogið?

Smá bútur af flugtakinu kominn á YouTube.


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Online

 

#3 06-04-2007 18:47:11

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5927
Vefsíða

Re: 19.02.2007 - Getur bíll flogið?

Vídeóbútar komnir aftur á YouTube.

Númer 1 og númer 2.


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Online

 

#4 13-03-2008 01:06:04

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5927
Vefsíða

Re: 19.02.2007 - Getur bíll flogið?

Þátturinn verður sýndur á Skjá 1 sunnudaginn 16.mars kl.19:40.


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Online

 

#5 19-05-2010 16:40:09

Sverrir
Vefari
Frá: frettavefur.net
Skráður: 16-04-2004
Póstar: 5927
Vefsíða

Re: 19.02.2007 - Getur bíll flogið?

Nú er bara að prófa og sjá hvernig ykkur gengur!

http://www.topgear.com/uk/games/rocket-robin


An expert is a person who has made all the mistakes that can be made in a very narrow field. Niels Bohr (1885 - 1962)

Online

 

Board footer

Powered by PunBB
© Copyright 2002–2005 Rickard Andersson