Módelspjallið - flugmodel.net

Þú ert ekki skráður inn

#21 23-07-2010 14:39:20

Haraldur
Rafvæddur
Frá: Kópavogur
Skráður: 20-05-2005
Póstar: 578

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Það verður gaman að sjá myndir af tilbúinum módelum.  Og svo setum við þær í dóm götunar og dæmum hvaða módel er best smíðað.


Á fljúganda flugi.

Offline

 

#22 23-07-2010 17:00:28

Gaui
Smíðameistari
Frá: Eyjafirði
Skráður: 28-11-2004
Póstar: 1534
Vefsíða

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Mig vantaði að setja hjólastell undir Fjósamanninn og þar sem ég átti leifar af Volvo stuðara undir borði datt mér í hug að tékka hvort ég gæti efnað úr honum í eitt sett.  En fyrst þurfti ég að finna út hvað það ætti að vera stórt.  Það eru engar leiðbeiningar um það og Steve bendir bara á að maður geti notað afgangs stell eða keypt nýtt.

Eina leiðin til að ákvarða stærðina var að nota teikninguna sem fylgir.  Ég mældi hæðina á stellinu þar og reyndi að finna samsvarani vegalengd sem ég gæti mælt á módelinu.  Hér sést hvar ég mældi:

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1279904019.jpg

Nú teiknaði ég upp stell sem passar á skrokk sem er 23 sm á breidd og á að vera u.þ.b. 19 sm í mitt dekkið.  Það varð strax ljóst að ég gat ekki fengið heilt stell úr stuðaranum, svo ég ákvað að snikka það í tvennu lagi.  Hér er ég búinn að teikna annan helminginn á stuðarann:

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1279904151.jpg

Nú var bara að fá sér skurðarskífu í slípirokkinn og skera út tvo stellhelminga:

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1279904207.jpg

Hér er ég búinn að sverfa til með þjöl, þrífa ryðvörnina af (já, þykkt lag að Techtyl !)  beygja og setja dekk á:

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1279904304.jpg

Og hér er svo stellið komið undir.  Bara ágæt, þó ég segi sjálfur frá.

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1279904357.jpg

Ég notaði tækifærið og setti togkrók eins og Dr.B gerði.  Þeir virka fínt þessir: ég er búinn að prófa svona áður.

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1279904394.jpg
cool

Síðast breytt af Gaui (24-07-2010 13:48:39)


Alltaf á ég að gera allt -- og aldrei má maður ekki neitt!

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði

Offline

 

#23 23-07-2010 20:12:43

Árni H
Dellukarl
Skráður: 07-10-2004
Póstar: 522
Vefsíða

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Gaui skrifaði:

Vídeologgurinn er hreinasta snilld Doktor Björn.  Ef ég ætti vídeokameru, þá myndi ég herma þetta eftir þér.

Gaui - ég get glatt þig með því að þú átt nú hér með ágæta HD vídeókameru. Hún er bara svolítið utan seilingar enn wink

Offline

 

#24 23-07-2010 20:38:00

Gaui
Smíðameistari
Frá: Eyjafirði
Skráður: 28-11-2004
Póstar: 1534
Vefsíða

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Ég bíð með heilan andahóp í hálsinum. cool


Alltaf á ég að gera allt -- og aldrei má maður ekki neitt!

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði

Offline

 

#25 27-07-2010 10:41:49

Agust
Stórgrúskari
Skráður: 22-04-2004
Póstar: 1349
Vefsíða

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Það styttist í fyrsta flug í þessum smíðaþræði:

http://www.rcmf.co.uk/4um/index.php/topic,67654.0.html

Steve Holland fylgist með og gefur gór ráð.


Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net

Offline

 

#26 30-07-2010 14:45:52

Gaui
Smíðameistari
Frá: Eyjafirði
Skráður: 28-11-2004
Póstar: 1534
Vefsíða

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Þá er ég búinn að sækja mótorinnn sem ég ætla í Fjósamanninn (gárungarnir hér fyrir norðan eru farnir að kalla þetta Sveitavarginn, en við tökum nú ekki mikið mark á þeim!).  Það er Moki 45 sem ég var með í Sopwithg Pup.  Þar sem nokkuð er liðið á 2007, þá ákvað ég að nota notað í staðinn fyrir að kaupa nýtt.

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1280500885.jpg

Þá var hægt að smíða vélarhlíf, en hún er algerlega úr timbri og smokkast yfir mótorinn:

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1280500937.jpg

Og hér er svo vélarhlífin komin á.

http://frettavefur.net/Forum/uploadpic/2010/1280501088.jpg

Ég er búinn að reikna út hvað ég þarf af efni í vænginn og þarf líklega að punga út með um tíu kjarvala fyrir því.   Sjáum til eftir helgi.


Alltaf á ég að gera allt -- og aldrei má maður ekki neitt!

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði

Offline

 

#27 30-07-2010 15:00:15

Siggi Dags
Dellukarl
Frá: Reykjavik
Skráður: 27-02-2006
Póstar: 183
Vefsíða

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Flottar bremsur wink


Kveðja
Pegasus

Offline

 

#28 30-07-2010 17:02:37

Gaui
Smíðameistari
Frá: Eyjafirði
Skráður: 28-11-2004
Póstar: 1534
Vefsíða

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Einfalt virkar oftast best cool


Alltaf á ég að gera allt -- og aldrei má maður ekki neitt!

Bara átta kveðjur
Guðjón Ólafsson - Eyjafirði

Offline

 

#29 31-07-2010 10:01:57

Agust
Stórgrúskari
Skráður: 22-04-2004
Póstar: 1349
Vefsíða

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Hafa menn eitthvað spáð í hvort þeir ætli að hafa vænginn í tveim hlutum eða ekki? Hann er 220 cm langur og því ekki auðvelt að flytja hann í einu lagi.

Fyrir 20 árum smíðaði ég Ultra-Hots eftir eikningu. Gert var ráð fyrir að 200 cm vængurinn væri í einni lengju, en ég smíðaði hann þannig að uðvelt yrði að flytja hann í tveim 100 cm hlutum.

Myndir af vélinni má sjá hér.

Vængur Fjósamannsins er með dihedral, en Ultra-Hots er beinn.

http://www.agust.net/rc/Ultra-Hots/

Síðast breytt af Agust (31-07-2010 10:03:22)


Bestu kveðjur
Ágúst H Bjarnason
Þytur
http://www.agust.net

Offline

 

#30 31-07-2010 10:29:24

Björn G Leifsson
Flugdoktor
Frá: Reykjavík
Skráður: 23-04-2004
Póstar: 2041

Re: Farmhand 90 - Fjósamaðurinn

Ég ætla að hafa vænginn í tveimur hlutum og er að hugsa um að fylgja ráðum herra Holland. Hann talar um að útbúa samsetningarbitana úr kolfíberplötum sem ná tvö rifjabil inn í vænginnn Það ætti að vera frekar einfalt en kostar að kaupa kolfíberplötur og samlíma í 6mm þykkt efni til að saga út bitana úr.
Var að velta fyrir mér hvort hægt væri að hafa hann í þremur hlutum, einn beinan undir vélinni með flöpsunum á og svo hallandi hluta þar fyrir utan en slík breyting mundi krefjast meiri hönnunarvinnu.

Eins og venjulega þá þýtur Gaui fram úr manni wink Sjálfur er ég stopp í bili, kemst ekki í gang aftur fyrr en í septemberbyrjun,,, vonandi. Verð í útlandinu allan ágúst svo þið verðið bara að skemmta ykkur án mín á Costa del Mel sad


Vísdómur vikunnar:
"If everything seems under control, you're just not going fast enough"
Mario Andretti 

Offline

 

Board footer

Powered by PunBB
© Copyright 2002–2005 Rickard Andersson