
Þá er hátíðin afstaðinn og elstu menn muna ekki eftir svona miklu fjöri og skemmtun. Veislustjórn var í öruggum höndum Stefáns Sæmundssonar sem leysti það hlutverk listilega af hendi. Ottó Tynes heiðursgestur kvöldsins sagði margar góðar sögur úr fluginu og gaf félaginu fallega mynd. Veitar voru viðurkenningar til félagsmanna fyrir vel unnin störf að félagsmálum og í þágu félagsins á sl. árum.
Stöðugur straumur var af sögum allt kvöldið og minntist Stefán einnig á handbók flugmódelmannsins sem stendur til að prenta og dreifa á ca. 60 þúsund heimili í landinu en þar er tekið á ýmsum hlutum, s.s. makavali, fjölskyldubílnum, barneignum og sumarfríum.
Maturinn var í sér klassa og voru allir sammála um það hversu vel hefði tekist til og var Eiríki Finnssyni færðar sérstakar þakkir fyrir matinn og átti hann það svo sannarlega skilið. Að auki sá hann að öllu leyti um það að útvega húsnæðið og alla skipulagningu í kringum það og kann flugmódelfélagið Þytur honum bestu þakkir fyrir þá vinnu.
Balsabandið kom saman eftir langt hlé, síðustu dögum höfðu þeir eytt í æfingabúðum frá morgni til kvölds. Þeim til samlætis voru tveir gestaleikarar, það voru þeir Ólafur Egilsson fiðluleikari og Þorkell Jóhannesson á harmoniku og stóðu þeir sig með mikilli prýði. Gestir stigu svo dansinn við undirleik þeirra fram á rauða nótt og skemmtu sér prýðisvel. Balsabandið frumflutti nýtt lag sem bar titillinn Flugmannslíf þar sem gert er góðlátlegt grín að litla flugmódelmanninum.
Nú er bara að byrja að láta sér hlakka til þangað til næsta árshátíð verður haldinn, væntanlega á 40 ára afmæli félagsins.
Hægt er að sjá myndir af skemmtuninni í myndasafni Þyts.