19.06.2007 - Styttist í Jöklastelpuna
Dagskráin fyrir Jöklastelpuna eins og hún lítur út í dag eða sá hluti sem snýr að okkur sést með því að smella á Umræður um fréttina hér að neðan, hægt verður að fylgjast með ferðinni á netinu frá og með 22.júní.Skv. þessu þarf að fylgjast með henni síðustu vikuna í júní, án efa á eitthvað eftir að birtast í fjölmiðlum landsins þegar nær dregur. Með í för verður Mustang sem gengur undir nafninu Fröken Velma.
Gert er ráð fyrir að vélin verði aftur hér í kringum 10.júlí þegar hún heldur heim á leið en þá stoppar hún ekki lengi þar sem stefnt er að því að hún verði mætttil Oshkosh 12.júlí.
Áhugasamir geta slegið inn "Operation Bolero II" í uppáhalds leitarvélinni sinni til að afla sér nánari upplýsinga.

