25.07.2007 - Nýtt á markaðnum

Nú eru nokkrar nýjar vélar á leiðinni frá Hangar 9 sem vert er að gefa auga.

Efst á lista er að sjálfsögðu B25 enda getur engin módelframleiðandi með sjálfsvirðingu án hennar verið. Twist er komin í 150 útgáfu en ekki hefur hún stækkað mikið við það, vænghafið er ekki nema 155 cm. Hin síunga J-3 verður líka í boði í 1/4 skala og í hefðbundnu gulu litaskema. Einnig hefur verið ákveðið að endurútgefa Cap 232 í 33% skala í takmörkuðu magni en hún naut mikilla vinsælda á sínum tíma og hefur verið mikið spurt um hana síðan framleiðslu og sölu var hætt.

OS hefur líka gefið út 75 útgáfu af AX mótorlínunni sinni og mun verða hægt að skipta út núverandi 61 FX fyrir þennan mótor því sama skapalón er notað fyrir mótorfestingarnar og þeir eru nánast alveg eins að ytra ummáli.
Umræður um fréttina (2)

Tölfræði


   Fjöldi frétta: 613
Fjöldi mynda: 3562
  Spjallpóstar: 13700
  Spjallþræðir: 2210
      Notendur: 173
Myndastraumur

Fréttir


31.12.2008
Áramótaraus
28.12.2008
Gamlársflug
24.12.2008
Gleðileg Jól

Atburðir


19.01.2009
Aðalfundur Flugmódelfélags Suðurnesja

Gagn & gaman


Leita á Fréttavefnum
Kort af módelvöllum
RSS - Fréttir
RSS - Umræður
Um Fréttavefinn
Fréttavefur Flugmódelmanna © 1999-2008 v4