08.08.2007 - Styttist í hina árlegu flugkomu á Melgerðismelum
Laugardaginn 11.ágúst nk. verður hin árlega flugkoma Flugmódelfélags Akureyrar(FMFA) haldin á Melgerðismelum. Sendagæslan byrjar stundvíslega kl.9 og skipulögð dagskrá stendur yfir til kl.18. Hægt er að fræðast nánar um samkomuna með því að líta á vef FMFA. Einnig er þráður á spjallinu þar sem rætt er um flugkomuna.
Óhætt er að segja að þarna verði allir módelmenn sem vettlingi geti valdið.
Munið svo að nóg er að gera fyrir fjölskylduna, stór handverkshátíð í Hrafnagili og fiskidagur á Dalvík.
Hægt er að lesa um eldri samkomur og skoða myndir hér á vefnum.
2004: Frásögn & myndir
2005: Frásögn & myndir
2006: Frásögn & myndir

