14.08.2007 - Melgerðismelar 2007 - samantekt og myndir
Að venju var nóg um að vera á Melgerðismelum og bárust fréttir af því að fyrstu menn hafi yfirgefið byggðir sínar strax eftir verslunarmannahelgina og haldið norður á leið. Veðurspáin leit ekki vel út fyrir laugardaginn og greinilegt að margir létu það hafa áhrif á sig því fámennara var í ár en mörg undanfarin ár. Gaman var þó að sjá að þó nokkrir áhorfendur létu sjá sig á svæðinu þrátt fyrir veðurhorfurnar.Laugardagurinn hófst á smá vætu en daganna á undan hafði gengið á með næturskúrum en fljótlega eftir 10 fór að rofa til og fyrstu menn fóru að hætta sér í loftið. Veðrið batnaði svo er á leið og lét sólin sjá sig eftir hádegi þó ekki hafi hún stoppað lengi. Að venju voru vöfflur og kaffi til sölu og er það heilög skylda allra módelmanna að fá sér alla veganna eina vöfflu og skella sér svo í grillið, það kostar jú að halda úti svona glæsilegri samkomu og er sá kostnaður fjármagnaður að mestu með veitingasölu.
Formlegri dagskrá lauk svo um sex leytið og þá tók við undirbúningur fyrir kvöldmatinn en í boði var prýðisgott grillkjöt frá Norðlenska og voru því gerð góð skil. Ekki skemmdi félagsskapurinn fyrir, mikið var spjallað og spáð í spilin yfir borðhaldinu.
Þrátt fyrir fámenni þá voru frekar mörg módel á staðnum og var þeim flestum flogið. Flugmenn voru á öllum aldri en sá yngsti að þessu sinni var Kristófer Jónsson(Erlendssonar) sem er aðeins fjögurra ára, hann var líka án efa með minnsta flugmódelið á samkomunni.
Að venju voru mörg falleg flugmódel á svæðinu og var reynt að mynda öll módelin sem sáust á laugardeginum og eru þau í sér myndasafni en svo er annað myndasafn með hefðbundnari myndum frá flugkomunni.
Hjörtur eyddi góðum part af föstudagskvöldinu við ísetningu á reykdælu í Yakinn sinn og var hún óspart notuð á laugardeginum við góðar undirtektir. Karl Hamilton flaug kengúrinni sinni og uppskar mikið lófaklapp fyrir flott flug. Þröstur mætti með nokkur stór og falleg módel að venju og var þeim mikið flogið, stóri Yakinn sat þó hjá í ár vegna tæknilegra örðugleika en úrlausn þeirra vafðist jafnvel fyrir færustu flugvirkjum landsins og aðstoðarmönnum þeirra.
Diddi og Guðni tóku samflug á Big Stik. Jón Erlends sýndi okkur hvernig bensín(tankur) er losað á flugi úr þyrlu og svo lendingu í beinu framhaldi. Gummi og Leifur voru með 5 cylindra ASP-400 stjörnumótor og var hann gangsettur, eitthvað var hann nú keyrður ríkur því eitthvað af bensíninu virtist skila sér með útblæstrinum. Því miður fóru sumir heim með fleiri módelhluta en þeir komu með. Árni Hrólfur stóð ljósmyndavaktina hjá þeim norðanmönnum og eflaust eigum við eftir að sjá myndir frá honum á vef þeirra norðanmanna.
Adrenaline var mikið skoðaður af viðstöddum en það hefur mátt fylgjast með smíðinni á honum hér á vefnum, reyndar eins og á svo mörgum öðrum vélum sem voru staddar þarna. Ekki vantaði þyrlur á svæðið en Jón, Tóti og Ingþór sáu að mestu um þann hluta. Kaupin gerðust hratt á eyrinni, nú eða melnum, og í eitt skipti var módelið varla lent þegar búið var að selja það. Einnig sáust gamlir reynsluboltar á svæðinu og er það alltaf ánægjulegt að sjá menn snúa aftur eftir hlé frá sportinu.
Að venju var þetta frábær dagur og langar mig að þakka þeim norðanmönnum kærlega fyrir viðtökurnar en það er mikil vinna sem liggur að baki samkomu sem þessari og ekki sjálfgefið að hún sé haldin ár eftir ár.

