17.08.2007 - Flugkoma á Tungubökkum 18.ágúst
Á morgun er komið að hinni árlegu stórskala flugkomu skv. IMAA reglum sem haldin er að Tungubökkum. Flugkoman hefst stundvíslega kl.10 og eru menn hvattir til að vera tímanlega á svæðinu.Ef ekki skyldi viðra þá verður flugkoman færð yfir á sunnudaginn 19.ágúst.
Minnum menn einnig á að nú er farið að styttast í Fréttavefsflugkomuna en hún verður haldin laugardaginn 1.september á Arnarvelli hjá Flugmódelfélagi Suðurnesja en þann dag er einnig aðaldagskrá Ljósanætur svo nóg verður að gera fyrir alla fjölskylduna.

