30.08.2007 - Great Planes eignast Goldberg og Lanier
Þann 24.ágúst sl. tilkynnti Great Planes að fyrirtækið hefði keypt Carl Goldberg og Lanier R/C. Bæði Goldberg og Lanier eru gömul og rótgróin fyrirtæki í módelbransanum en Goldberg er rúmlega 50 ára gamalt og Lanier var stofnað 1964 af Len Purdy og var eitt af fyrstu fyrirtækjunum til að bjóða ARF módel. 1979 kaupir Spivey fjölskyldan fyrirtækið af honum.Fyrirtækin tengdust svo árið 2002 þegar Bubba Spivey keypti Goldberg og hóf að framleiða mörg af þeirra frægustu módelum sem ARF.
Great Planes er líka orðið með eldri fyrirtækjum í módelheiminum en það var stofnað 1981 af Don Anderson og er í dag hluti af Hobbico sem er risi á módelmarkaðnum í Ameríku með mjög væna markaðshlutdeild.

