04.09.2007 - Ljósanæturfréttavefs- ársvígslu flugkoma að baki
Sunnudaginn 2.september sl. var þremur stórviðburðum slegið saman í einn. Ljósanætur- og Fréttavefsflugkoma ásamt árs vígsluafmæli Arnarvallar. Frábært veður, sól og hægur vindur hjálpaðist allt við að gera daginn að frábærum flugdegi.Mikið var flogið og skemmtu menn sér við alls konar kúnstir, jafnt á jörðu sem ogí lofti. Diddi kom alla leiðina frá Akureyri til að fljúga og er óhætt að segja að hann hafi nýtt sér allan flugvöllinn ásamt því að vera lengst að komni flugmaðurinn í þetta skiptið. Mikið magn af SS pylsum og gosi hvarf ofan í viðstadda.
Hægt er að skoða myndir frá flugkomunni í myndasafni Flugmódelfélags Suðurnesja.
ModelExpress verður með búðarkvöld fimmtudagskvöldið 6.september nk. að Hraunhellu og hefst það kl.19:30. Vinsamlegast kynnið ykkur staðsetninguna á kortinu.

