
Hvern hefur ekki alltaf langað til að smíða módel úr Star Wars? Kannski ekki okkur hér upp á klaka en ef þú átt heima í Bandaríkjum Norður Ameríku þá eru svo sem ágætar líkur á því, hvað þá heldur ef þú ert meðlimur í eldflaugaklúbbi.
Hópur manna frá Santee í Kaliforníu er einmitt að láta drauminn rætast um þessar mundir og er að smíða eitt stykki X-Wing í 100% skala, rétt sex og hálfur meter á lengd og auðvitað með R2-D2 um borð.
Til stendur að jómfrúarflugið fari fram laugardaginn 6.október nk.
Áhugasamir geta lesið sér nánar til um þetta áhugaverða verkefni á vefslóðinni
http://www.polecataerospace.com/X-Wing.htm