07.11.2007 - Búðarkvöld að Tungubökkum

Flugmodel.com verður með búðarkvöld fimmtudaginn 8.nóvember nk. að Tungubakkaflugvelli í flugskýlinu hjá Einari Páli. Gamanið hefst kl.20 og stendur yfir til kl.22.

Mikið af nýjum vörum, heitt á könnunni.

Athugið að vegna framkvæmda þarf að keyra örlítið aðra leið inn á Tungubakkaflugvöll en menn eru vanir. Um leið og komið er yfir brúna við Köldukvísl þarf að beygja þar út af þjóðveginum, þar eru vegamerkingar og appelsínugul skilti varða svo leiðina. Þetta er örlítið fyrr heldur en gamli afleggjarinn var.

Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.
Umræður um fréttina (0)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund