13.11.2007 - Aðalfundur Þyts 15.nóvember

Fimmtudaginn 15. nóvember 2007, kl. 20:00 í Bíósalnum (Þingsal 5) Hótel Loftleiðum, Reykjavíkurflugvelli.

Þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2007 hafa einir atkvæðisrétt á aðalfundinum. Reikningar Þyts liggja til skoðunnar að Hamranesi.

DAGSKRÁ AÐALFUNDAR
1. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
2. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
4. Skýrslur nefnda.
5. Kosning formanns samkvæmt ákvæðum 9.gr.
6. Kosning ritara, gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 9.gr.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Kosning í nefndir.
9. Tillögur og lagabreytingar.
10. Önnur mál.

Með fylgja lög Þyts í heild frá 3.11.2005 og samhljóða samþykkt tillaga stjórnar að lagabreytingum (Smellið hér til að sjá tillögu að lagabreytingum). Helstu breytingar eru að lögin hafa verið númeruð upp til þess að vera gleggri í aflestri fyrir félagsmenn.

Í kaffihléi verða veitingar í boði félagsins.

Stjórnin

ATH: Vegna mistaka var fundarboðið ekki sent á alla félaga í Þyt. Við þessu er verið að reyna að bregðast með því að hafa samband við þá með öðrum hætti, þ.e. símleiðis eða með tölvupósti. Stjórnin vill að sjálfsögðu hvetja sem flesta félagsmenn til að koma á aðalfund Þyts.
Umræður um fréttina (0)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund