16.11.2007 - Aðalfundur Þyts að baki

Aðalfundur Þyts var haldin í kvöld á Hótel Loftleiðum og var góð mæting. Þorsteinn Hraundal formaður Þyts setti fundinn og stakk upp á Axeli Sölvasyni sem fundarstjóra og var það samþykkt. Axel stakk svo upp á Sverri Gunnlaugssyni sem fundarritara og var það samþykkt

Þorsteinn flutti skýrslu formanns og fór yfir það helsta sem gerðist á árinu og helstu vonir með næsta ár. Því næst kynnti Rafn Thorarensen gjaldkeri reikninga félagsins og voru þeir samþykktir. Ákveðið var að breyta ekki félagsgjöldum þar sem ekki var talin þörf á því að svo stöddu.

Því næst var komið að skýrslum nefnda og ræddi Frímann Frímannsson um starf svifflugarms flugmódelfélagsins og afhenti verðlaun fyrir Íslandsmeistaramótið í hástarti sem haldið var í sumar. Guðjón Halldórsson varð í fyrsta sæti, Böðvar Guðmundsson í öðru og Steinþór Agnarsson í þriðja.

Í kaffihléinu var skúffuköku og kaffi gerð góð skil.

Þá var komið að stjórnarkosningum, Rafn gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og stjórnin ákvað að nota tækifærið og stokka upp í sínum röðum. Björn G. Leifsson kemur nýr inn í stjórn sem meðstjórnandi, Jón V. Pétursson fer úr ritarahlutverkinu og tekur við gjaldkerastarfinu næstu tvö árin, Ófeigur Ö. Ófeigsson fer úr meðstjórnarstarfinu og tekur við starfi ritara næsta árið.

Guðjón Halldórsson og Skjöldur Sigurðsson gáfu áfram kost á sér í starf endurskoðenda og var það samþykkt og þeim þakkað fyrir framlag sitt. Skipun nefnda fór rólega af stað og mun stjórn vinna frekar í þeirri vinnu.

Því næst var farið yfir tillögur til lagabreytinga og var ákveðið að samþykkja tillögur stjórnar en mælst til þess að endurskoðun verði haldið áfram og jafnvel skoðað að senda mönnum lög félagsins með góðum fyrirvara fyrir næsta aðalfund og benda mönnum á rétt sinn til athugasemda og breytinga.

Undir liðnum önnur mál voru nokkur mál rædd en einna hæst fór þó sú tillaga Björns G. Leifssonar sem lagði fram ályktun til samþykktar á fundinum en skv. henni mun Þytur stefna að þátttöku í„flugmódelsamtökum Íslands“ þegar og ef af stofnun þeirra verður.

Fleira var ekki gert og þakkaði Axel fundarmönnum fyrir góða fundarsetu og sleit því næst fundinum.
Umræður um fréttina (0)

Tölfræði


   Fjöldi frétta: 613
Fjöldi mynda: 3562
  Spjallpóstar: 13706
  Spjallþræðir: 2210
      Notendur: 173
Myndastraumur

Fréttir


31.12.2008
Áramótaraus
28.12.2008
Gamlársflug
24.12.2008
Gleðileg Jól

Atburðir


19.01.2009
Aðalfundur Flugmódelfélags Suðurnesja

Gagn & gaman


Leita á Fréttavefnum
Kort af módelvöllum
RSS - Fréttir
RSS - Umræður
Um Fréttavefinn
Fréttavefur Flugmódelmanna © 1999-2008 v4