
Nýjasta heftið af Bílar & Sport fór í prentun í gær og ætti að verða komið á sölustaði um eða fljótlega eftir helgi. Þemað að þessu sinni er trukkar og mun blaðið vera 92 síður en inn á milli leynist nú líka efni sem er tengdara sportinu okkar. Þar má finna grein um Lancaster í eigu Frímanns Frímannssonar en greinin fjallar að mestu um reynsluflugið á vélinni og er myndskreytt í samræmi við það.
Jólabókin í ár, alla veganna á innlendum markaði, hlítur að vera
Flugvélar á og yfir Íslandi eftir
Baldur Sveinsson. Eða eins og segir á heimasíðu útgefanda:
"
Flugvélar á og yfir Íslandi er glæsilegt og viðamikið verk með yfir 500 ljósmyndum af öllum gerðum flugvéla sem hafa haft viðdvöl hér á landi um lengri eða skemmri tíma. Sérstök áhersla er lögð á að sýna flugvélarnar í sínu rétta umhverfi, í háloftunum, með íslenskt landslag í bakgrunni en svo stórt safn slíkra mynda hefur hvergi sést áður."
Hægt er að
sjá myndir af og úr bókinni hér.