19.03.2008 - Vínarbrauðsmótið

Hið árlega Vínarbrauðsmót verður haldið á Hamranesi laugardaginn 22.mars nk. og hefst stundvíslega kl.12.

Þátttökuskilyrði eru þau sömu og frá upphafi þ.e.a.s. menn mæta með kaffi og vínabrauð, og ætli menn að vinna til verðlauna þá er algjört skilyrði að kunna eins og eina til tvær góðar flugsögur.

Í ár er Vínarbrauðsmótið sérstakt að því leyti að það lendir á Góunni. Módelmenn ættu því að grípa tækifærið núna til að skemmta sér á þessu móti á þessum tíma því það ber ekki aftur upp á Góu fyrr en eftir 116 ár.

Ef veður verður eitthvað til leiðinda þá má alltaf hringja út hjálparsveitir til að koma mönnum út á Hamranes.

Munið að módelin eru algjört aukaatriði á þessu móti, aðaltilgangur þess er að eiga góða stund saman út á Hamranesi og skiptast á stríðssögum. Þetta er þó kjörið tækifæri til að taka jómfrúarflug á smíði vetrarins og veðurspáin lofar góðu.
Umræður um fréttina (7)

Tölfræði


   Fjöldi frétta: 613
Fjöldi mynda: 3562
  Spjallpóstar: 13706
  Spjallþræðir: 2210
      Notendur: 173
Myndastraumur

Fréttir


31.12.2008
Áramótaraus
28.12.2008
Gamlársflug
24.12.2008
Gleðileg Jól

Atburðir


19.01.2009
Aðalfundur Flugmódelfélags Suðurnesja

Gagn & gaman


Leita á Fréttavefnum
Kort af módelvöllum
RSS - Fréttir
RSS - Umræður
Um Fréttavefinn
Fréttavefur Flugmódelmanna © 1999-2008 v4