01.04.2008 - Síðasti dagur á Hamranesinu

Þau sorgartíðindi hafa borist að Hamranesið verði lokað frá og með morgundeginum. Módelmenn hafa verið í mikilli óvissu með framtíð sína á Hamranesi vegna framkvæmda í næsta nágrenni og barst tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ í morgun með þessum válegu tíðindum.

Mun þetta vera tilkomið vegna stækkunnar álversins í Straumsvík en þeir munu ætla að nýta Hvaleyrarvatnið í varmaskipti en að auki mun nálægðin við aðveitustöðina við Hamranes skapa ákjósanlegar aðstæður fyrir frekari uppbyggingu.

Ákveðið hefur verið að kveðja Hamranesið með miklum látum og mun vera boðað til flugkomu/grills í kvöld, reiknað er með að matur verði klár um 1900 en módelmenn eru hvattir til að koma fyrr og fljúga á vellinum. Ekki verður um skipulagða dagskrá að ræða.

Umræður um fréttina (8)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund