03.04.2008 - Aprílfundur að baki
Aprílfundur Þyts var haldinn að Tungubökkum í kvöld og var góð mæting, boðið var upp á vöfflur og kaffi. Rætt var um mót og samkomur sumarsins og flugsögur rifjaðar upp.Það er ljós að nóg verður að gera í sumar og eru módelmenn hvattir til að fylgjast reglulega með atburðaskránni hér á vefnum. Ábendingar um módeltengda atburði eru alltaf vel þegnar.

