
Laugardaginn 10.maí(11. og 12. til vara) kl.10 þá heldur Flugmódelfélag Suðurnesja hina árlegu
flotflugkomu sína á Seltjörn við Arnarvöll. Yfirleitt hafa menn komið saman og flogið eins og þeim hentar en að þessu sinni verður aðeins meira um að vera.
Sett verður upp keppni en í verðlaun verður
Seawind láðs- og lagarvél frá Great Planes. Dæmt verður út frá heildarsvip flugsins, flugtak, lending, menn gætu einnig átt von á að vera beðnir um að fljúga flata áttu og lykkju sem hluta af keppninni.
Nú er um að gera að fjölmenna og reyna fyrir sér í flotfluginu og ekki skemmir fyrir að geta átt von á að fara heim með glænýtt flugmódel!!!
ATH.
Ekki er leyft flug á Arnarvelli á meðan á flotflugkomunni stendur!
Bendi á nýjan lið í atburðaskrá sumarsins en það er
stríðsfugla flugkoma sem Einar Páll stendur fyrir og verður hún haldin þann 26.júlí nk. að Tungubökkum. Ef það vantar einhverja atburði og mót á
listann þá eru menn vinsamlegast beðnir um að
hafa samband, einnig ef dags- og tímasetningar breytast.