
Þann 14.maí nk. mun TCAM(Telecommunications Conformity Assessment and Market Surveillance Committee) funda í Brussel og ræða um notkun 2.4GHz til fjarstýringar í Evrópu. Það sem er óvenjulegt er að fundurinn var kallaður saman til að fjalla eingöngu um þetta tiltekna mál.
TCAM getur bannað notkun 2.4GHz(eftir EN300328 og ERC REC 70-03 þ.e.a.s. upp að 100mW) eða leyft notkun þess um alla Evrópu. Því mun niðurstaðan hafa víðtæk áhrif. Hingað til hefur ekki verið amast við 2.4GHz fjarstýringum með allt að 100mW afli í flestum Evrópulöndum en ekki hefur verið tekin formlega afstaða til þess enn. Í dag er tíðnisviðið undir 10mW algjörlega frjálst til afnota fyrir hvað sem er.
Þeir sem helst hafa sótt gegn innleiðingu tækninnar í módelsportið eru fyrirtæki sem framleiða þráðlausan samskiptabúnað. Formleg kvörtun var borin upp af Cisco á 11. fundi CEPT/ETSI þann 13.-14.september sl. Þeir vilja meina að notkun 2.4GHz við fjarstýringu sé dæmi um óheimila notkun á ISM tíðnisviðinu og fara fram á algjört bann við notkun 2.4GHz tíðnisviðsins nema fyrir þráðlaus fjarskiptanet og Bluetooth gagnasamskipti. Athugið að hér er átt við 100mW sendistyrk, þeir gera ekki athugasemdir við 10mW.
Settur var á laggirnar RC starfshópur en hann skipa ACT, DAeC, DMFV, Graupner(XPS/IFS), JSB(Spektrum), Multiplex, RC-Network, Robbe(Futaba), Simprop og Weatronic.
Menn mega alls ekki taka þessu sem einhverjum dauðadómi yfir 2.4GHz en þetta kann að þýða að einungis verði heimilt að nota senditæki með 10mW sendistyrk.