23.05.2008 - Þyrlumót

Á þessu herrans ári 2008 er loksins komið að því að halda þyrlumót á íslandi!

Eftir margar tilraunir og miklar pælingar verður þyrlumót haldið laugadaginn 12. júlí 2008 á suðvestur horni landsins, sunnudagurinn 13. júlí verður til vara ef veðurspáin verður leiðinleg.

Ætlunin er að hafa þetta skemmtilegt mót á léttu nótunum þótt keppt verði í nokkrum þrautum. Þaulreyndir flugmenn verða í dómarasætum svo dæmt verði af réttlæti. Reglur eru sérsniðnar að meðalgetu íslenskra flugmanna þannig að allir sem eru komnir yfir „hover stigið“ ættu að geta tekið þátt. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir góða frammistöðu sem og bestu brotlendinguna.

Öryggið verður sett á oddinn í þessu móti og verða allar þyrlur sem fljúga á mótinu skoðaðar fyrir gangsetningu og aðstoðað við að lagfæra módel til að standast ýtrustu öryggiskröfur.

Hvetjum við alla sem áhuga hafa á fjarstýrðum þyrlum og mekanískri tækni að mæta, það verða góðar lýsingar á keppnisþrautum, sýningarflugum og módelum svo allir ættu að geta skilið hvað er að gerast.

Nánari upplýsingar um nákvæma stað- og tímasetningu verða birtar á Fréttavefur.netvikuna fyrir keppni. Hafir þú einhverjar spurningar hafðu þá samband við ingthor.gudmundsson hjá gmail.com eða kíktu við á Þyrlumál þráðinn á http://spjall.frettavefur.net/
Umræður um fréttina (0)

Tölfræði


   Fjöldi frétta: 613
Fjöldi mynda: 3562
  Spjallpóstar: 13706
  Spjallþræðir: 2210
      Notendur: 173
Myndastraumur

Fréttir


31.12.2008
Áramótaraus
28.12.2008
Gamlársflug
24.12.2008
Gleðileg Jól

Atburðir


19.01.2009
Aðalfundur Flugmódelfélags Suðurnesja

Gagn & gaman


Leita á Fréttavefnum
Kort af módelvöllum
RSS - Fréttir
RSS - Umræður
Um Fréttavefinn
Fréttavefur Flugmódelmanna © 1999-2008 v4