09.06.2008 - Styttist í Ali, lokahnykkur söfnunnar

Nú eru rétt um vika þangað til Ali Machinchy kemur til landsins. Á meðal þess sem hann verður með í farangri er 7 metra sviffluga með þotumótor og Bobcat þotumódel svo það verður spennandi að sjá hann fljúga þeim.

Því eru þeir sem áhuga hafa á að sjá Ali(og aðra erlenda gesti í framtíðinni) hvattir til að leggja sitt af mörkum því það kostar óheyrilega margar krónur að flytja módelin til landsins og út aftur. Flugmódelfélag Suðurnesja og félagsmenn þess sem hafa lagt sitt af mörkunum skora á aðra módelmenn í landinu að leggja í púkkið og fjölmenna norður.

Þeir sem vilja styrkja söfnunina geta lagt inn á reikning 542-26-120639 kennitala 530194-2139, vinsamlegast sendið tilkynningar á netfangið sofnun@frettavefur.net.
Umræður um fréttina (0)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund