
Nú er bara einn dagur í að Ali mæti á klakann og fari að flögra hér um þannig að nú fer hver að verða síðastur að taka þátt í söfnuninni.
Því miður verður ekkert úr að
svifflugan komi að þessu sinni þar sem við áttum ekki von á að ná að safna upp í þær 1.2 milljónir sem flutningstilboðið hljóðaði upp á. En í staðinn kemur Ali með troðfullan kassa af módelum, Bobcat, MX2, Raven og jafnvel eitthvað meira.
Ekki láta þetta tækifæri til að sjá módelmann í heimsklasa fram hjá þér fara.
Þeir sem vilja styrkja söfnunina geta lagt inn á reikning 542-26-120639 kennitala 530194-2139, vinsamlegast sendið tilkynningar á netfangið
sofnun@frettavefur.net.
Fréttavefurinn óskar módelmönnum og öðrum landsmönnum gleðilegs þjóðhátíðardags.