05.07.2008 - Váleg tíðindi frá Taívan

Ekki berast skemmtilegar fréttir að austan um þessar mundir. Þotuknúið Rafale módel flaug inn í íbúð á 28.hæð í íbúðarbyggingu í Taipei og olli þar eldsvoða og talsverðum skemmdum ásamt því sem rýma þurfti blokkina. Sem betur fer slasaðist engin alvarlega í óhappinu.

Ekki er vitað hvað olli óhappinu en ein afleiðing af því er sú að öðrum af tveimur flugvöllum við höfuðborgina var lokað. Borgaryfirvöld fyrirskipuðu tafarlausa lokun á flugvellinum, sendu jarðýtur á svæðið til að fjarlægja flugbrautina og skilgreindu nánasta umhverfi sem flugbannssvæði.

Þegar þessi flugvöllur var byggður á sínum tíma þá var byggðin ekki komin svona nálægt honum en með vaxandi fólksfjölda þá hefur byggðin færst sífellt nær flugvellinum. Þetta er þróun sem við höfum horft upp á hér heima en vonandi þurfum við ekki að lenda í svipuðum aðstæðum í framtíðinni.

Flugmaðurinn hefur samþykkt að greiða fyrir allar skemmdirnar, brunann í íbúðinni, lyftukerfið og BMW sem skemmdist í bílakjallaranum vegna vatns frá slökkviliðinu.

Hægt er að sjá fleiri myndir af vettvangi með því að smella hér. Smá vídeóbút er hægt að sjá hér.
Umræður um fréttina (0)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund