07.08.2008 - Flugkoman á Melgerðismelum
Laugardaginn 9.ágúst nk. heldur Flugmódelfélag Akureyrar sína árlegu flugkomu á Melgerðismelum og hefst fjörið stundvíslega kl.9.Sendagæsla verður á staðnum eins og undanfarin ár og eru menn vinsamlegast beðnir um að skila sendinum þangað um leið og komið er á svæðið. Búið er að færa flugsvæðið niður fyrir Hyrnuna en í henni verða seldar vöfflur og kaffi og svo Þegar flugdagskránni lýkur um kvöldið þá verður grillið hitað upp og léttar veitingar í boði. Þetta er ein af stærri samkomum módelsumarsins svo stóra spurning hlítur að vera: Hvar verður þú á laugardaginn kemur!?
Hægt er að sjá myndir frá fyrri árum hér í myndasafninu. Fréttavefurinn verður að sjálfsögðu á svæðinu og verður hægt að sjá myndir frá samkomunni hér á vefnum á meðan að fjörinu stendur. En auðvitað verða allir módelmenn á staðnum svo það er spurning hvort það sé þörf á þessu ;)
Áhugasamir geta séð myndirnar hér á laugardaginn kemur en einnig verður tengill af forsíðu vefsins.

