03.09.2008 - Ljósanætur/Fréttavefs -flugkoma 6.september
Laugardaginn 6.september nk. verður hin árlega Ljósanætur/Fréttavefs-flugkoma Flugmódelfélags Suðurnesja haldin á Arnarvelli frá kl.10-15(vellinum verður þó ekki lokað kl.15).Veðurspáin lítur bærilega út þó venju samkvæmt stefni í smá golu en verið er að vinna í að bæta úr því.
Vonumst til að sjá sem flesta á svæðinu.
Hægt er að skoða myndir frá eldri flugkomum í myndasafni Flugmódelfélags Suðurnesja.

