
Eftir talningu viðstaddra og samanburðar við félagsskrá þá var þessi 38.aðalfundur Þyts lýstur löglegur. Fundur var settur, stungið var upp á Ágústi H. Bjarnasyni sem ritara og Kristjáni Antonssyni sem fundarstjóra, samþykktu viðstaddir það einróma.
Fyrst á dagskrá var skýrsla formanns en hana flutti fráfarandi formaður Þorsteinn Hraundal. Því næst bað Ófeigur Ö. Ófeigsson ritari um hljóðið en hann þakkaði félagasmönnum fyrir samfylgdina að sinni þar sem hann gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Jón V. Pétursson gjaldkeri Þyts lagði reikninga félagsins fram til samþykktar og voru þeir samþykktir eftir stuttar umræður. Fjárhagsáætlun félagsins fyrir næsta ár er óbreytt en ein breytingatillaga koma fram um hækkun félagsgjalda um 10%, úr 10.000 í 11.000 og aðrar tölur í samræmi við það. Þar sem jafnmörg atkvæði voru með og á móti tillögunni þá réðust úrslitin með hlutkesti og varð niðurstaðan sú að félagsgjöldin hækka á næsta ári um 10%.
Skýrslur nefndaFrímann V. Frímannsson kynnti starf svifflugmanna, tvö mót voru haldin í sumar, Kríumótið þann 17.maí og svo Íslandsmótið í hangi þann 28.júní í Draugahlíðum. Jón V. Pétursson varð í þriðja sæti á Íslandsmeistaramótinu í hangi og veitti verðlaununum viðtöku, Guðjón Halldórsson 1.sæti og Böðvar Guðmundsson 2.sæti, áttu því miður ekki heimangengt á fundinn.
Kaffihlé.
Pétur Hjálmarsson sagði frá Piper Cub mótinu en þar brast á með sannkölluðu syndaflóði en þrátt fyrir allt þá skemmtu allir sér vel.
Erlendur Borgþórsson sagði frá störfum flugvallarnefndar, reglulegt viðhald í sumar og fyrirhugaðar framkvæmdir á næsta ári.
Björn G. Leifsson sagði frá störfum flugsvæðisnefndar en hún hefur verið að störfum frá því snemma í vor og hefur fundað með fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar.
Fundur samþykkti að breyta áður auglýstri dagskrá og taka fyrir lagabreytingartillögu fyrir stjórnarkjör. Kosið var um breytingar á 9.grein en þar var aðal breytingin sú að 4 meðstjórnendur verða í stjórn í stað tveggja. Það var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta.
Kosning stjórnarInn komur; Steinþór Agnarsson formaður. Eysteinn Harrý Sigurðsson ritari. Gunnar B. Brynjólfsson meðstjórnandi. Haraldur Sæmundsson meðstjórnandi. Áfram í stjórn; Jón V. Pétursson gjaldkeri Einar P. Einarsson meðstjórnandi. Björn G. Leifsson meðstjórnandi.
Endurskoðendur: Guðjón Halldórsson og Skjöldur Sigurðsson
Nefndir
Svifflug: Frímann V. Frímannsson
Piper Cub: Pétur Hjálmarsson
Lendingarkeppni: Böðvar Guðmundsson
Íslandsmeistaramótið í listflugi: Milli félaga? Stjórn tekur að sér að kanna málið.
Flugvallar: Erlendur Borgþórsson
Flugsvæði: Björn G. Leifsson
Önnur mál
Steinþór Agnarsson nýkjörinn formaður tók til máls og ræddi um sportið og hvernig hann sæi það fyrir sér á næstu misserum, flugkomur, óformlegt, menn fjölmenni á flugvellina, meiri samskipti milli félaga og fleira. Einnig nefndi hann að menn þyrftu að sýna meira umburðarlyndi á milli hinna ólíku þátta sportsins, hvort sem það væru svifflugur, þyrlur, listflugvélar eða annað flug, þetta snýst jú um skemmtun en ekki rifrildi hjá okkur.
Fundarmenn þökkuðu fráfarandi stjórnarmönnum fyrir vinnu í þágu félagsins.
Þorsteinn Hraundal fyrirvarandi formaður tók til máls og þakkaði fyrir samvinnuna á kjörtímabilinu.
Almennar umræður um módelflug og flugstarfsemi.
<