
Er ekki komin tími á árlegt uppgjör Fréttavefsins:)
Rólegt var yfir mótshöldum á árinu en þó voru nokkur mót haldin ásamt því sem menn voru duglegir að hittast á samkomum í sumar en einnig fengum við góða gesti í heimsókn.
Í janúar hélt
Flugmódelfélag Suðurnesja aðalfund sinn en engar breytingar urðu á stjórn að þessu sinni.
Vínarbrauðsmót Þyts var haldið í mars og skemmtu menn sér konunglega yfir kaffibolla og sætabrauði. Fyrr á árinu var greint frá því að Hamranesinu hefði verið lokað vegna stækkunar álversins í Straumsvík en það var að sjálfsögðu
aprílgabb Fréttavefsins.
Vöfflumótið var haldið í byrjun maí og var engum vöfflum þyrmt.
Flotflugkoma Flugmódelfélags Suðurnesja var haldin um miðjan maí og mættu þar 7 flugmenn með 8 módel til leiks en einungis 4 tóku þátt í keppni sem efnt var til um glæsilega Seawind flotflugvél sem Einar Páll gaf. Steinþór Agnarsson hreppti fyrsta sætið eftir harða baráttu.
Í byrjun júní brá ritstjóri sér
austur á firði ásamt Flugmodel.com að boða fagnaðarerindið og var tekið hraustlega á því ásamt heimamönnum, flogið, myndað, selt og keypt.
Um miðjan júní kom svo
Ali Machinchy til landsins og skemmti okkur módelmönnum með frábærri flugsýningu, bæði á flugdegi Flugmálafélagsins á Akureyrarflugvelli og einnig á Melgerðismelum. Það var algjör unun að fá að fylgjast með honum og ræða málin við þá félaga en Shaun Newby var honum til til halds og traust í ferðinni.
Að sjálfsögðu fengu þeir félagar einnig að kynnast landi og þjóð en þeir fóru bæði í ísbjarnarleitarflug og kynntust íslenskri menningu á meðan að dvöl þeirra stóð.
Íslandsmótið í hangi var svo haldið í lok júní en þar bar Guðjón Halldórsson sigur út býtum.
Í lok júlí hélt Einar Páll svo
stríðsfuglaflugkomu á Tungubökkum og þrátt fyrir hávaðarok þá létu menn það ekki á sig fá heldur tóku flugið og skemmtu sér vel. Einnig hélt
Flugmódelfélag Suðurnesja hraðflugkeppni í fyrsta sinn um langa hríð og mættu 7 keppendur til leiks. Sverrir Gunnlaugsson bar sigur úr býtum en keppnin var gríðarlega hörð og einungis 4 sekúndur skildu að annað og fjórða sætið.
Piper Cub flugkoma Péturs Hjálmarsson var svo haldin í byrjun ágúst og þrátt fyrir nokkra regndropa af og til þá mætti þó nokkur fjöldi á svæðið og að sjálfsögðu skemmtu menn sér vel eins og vera ber.
Hin árlega flugkoma Flugmódelfélags Akureyrar var að sjálfsögðu á sínum stað helgina eftir Verslunarmannahelgina og skunduð allir sem fjarstýringu gátu valdið norður yfir heiðar. Sennilega hefur veðurspáin eitthvað dregið úr mönnum kjarkinn því oft hefur verið betri mæting, það sannaðist þó að menn eiga ekkert að hlusta á svoleiðis völvuspár enda var fínasta veður og mikið flogið alla helgina.
Sú nýbreytni var tekin upp að á Fréttavefnum mátti nálgast,
nánast á rauntíma, myndir frá samkomunni.Vakti þetta nokkra lukku svo eflaust verður framhald á.
Yfir matnum færðu módelmenn ritstjóra Fréttavefsins
mynd að gjöf í þakklætisskyni fyrir starf hans í þágu módelsamfélagsins síðustu árin.
Takk fyrir mig :)
Helgina eftir hélt Einar Páll
stórskalaflugkomuna sína að Tungubökkum og þrátt fyrir leiðinda veður mættu nokkrir hressir módelmenn á svæðið og tóku flug.
Ljósanætur- og Fréttavefsflugkoma var svo haldin fyrstu helgina í september á Arnarvelli en þó nokkur fjöldi módelmanna ásamt gestum og gangandi mætti á svæðið og lét veðrið ekki spilla fyrir sér en það gekk á með skúrum af og til yfir daginn.
Þytur hélt svo aðalfund sinn í nóvember og urðu þar smá breytingar á stjórn en Steinþór Agnarsson tók við sem formaður af Þorsteini Hraundal.
Fínasta flugveður var á
annan í jólum og vonandi nýttu sem flestir sér það til útiveru og flugs.
Veðurspáin fyrir fyrri hluta gamlárskvölds er bara bærileg svo vonandi fjölmenna módelmenn og fljúga síðasta flug ársins en skipulagðar samkomur verða bæði á Arnarvelli og Hamranesi á morgun.
Lengra var árið víst ekki :)
Nýársflug verður á Arnarvelli og Melgerðismelum.
Heimsóknatölur á Fréttavefinn eru nokkuð sambærilegar við árið í fyrra en rétt rúmlega 5% aukning mældist milli ára.
Fréttavefurinn óskar ykkur velfarnaðar á komandi ári og þakkar samveruna á árinu sem er að líða.
Til að stytta mönnum stundir fram eftir degi þá er sjálfsagt að renna yfir þær fjölmörgu ljósmyndir og vídeó sem má finna af íslensku módelflugi á netinu.
Myndasöfn:FréttavefurinnFlugmódelfélag SuðurnesjaMyndasafn Þyts er nú aftur orðið aðgengilegtFlugmódelfélag AkureyrarSmástundVídeó:FréttavefurinnFlugmódelfélag SuðurnesjaFlugmódelfélag AkureyrarMaggi formaðurGuðni Sig.