20.01.2009 - Aðalfundi Flugmódelfélags Suðurnesja lokið

Magnús Kristinsson formaður setti fundinn kl.20:05 og stakk upp á Sverri Gunnlaugssyni sem fundarstjóra og var það samþykkt samhljóða. Því næst kynnti formaður skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2008.

Sverrir Gunnlaugsson gjaldkeri fór því næst yfir reikninga félagsins og voru þeir samþykktir án athugasemda. Þá var fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið kynnt en félagsgjöld verða óbreytt og reynt verður að leggja í framkvæmdir við frágang á Hlíðarenda á árinu.

Næsti liður var kosning í stjórn en að þessu sinni var komið að því að kjósa vallarstjóra og meðstjórnanda. Guðni V. Sveinsson bauð sig fram til áframhaldandi starfa sem vallarstjóri og Gunnar M. Magnússon sem meðstjórnandi. Þar sem engin mótframboð bárust þá voru þeir kosnir rússneskri kosningu.

Engar tillögur eða lagabreytingar lágu fyrir að þessu sinni.

Undir liðnum önnur mál þá afhenti formaður verðlaun fyrir hraðflugskeppni(e. Pylon race) félagsins sem fram fór síðasta sumar. Sverrir Gunnlaugsson varð í fyrsta sæti, Steinþór Agnarsson í öðru og Guðni V. Sveinsson í þriðja sæti.

Því næst tók Guðmar til máls og vildi þakka núverandi og fyrrum stjórnarmeðlimum fyrir störf í þágu félagsins og taldi þá hafa sinnt starfinu vel á síðustu árum.

Steinþór tók næst til máls og þakkaði kærlega fyrir aðstoðina við leitina að Katana síðasta sumar.

Guðni V. Sveinsson tók næst til máls og bað menn endilega um að hafa samband við stjórnina ef þeir væru með einhverjar hugmyndir varðandi félagsstarfið eða framkvæmdir.

Rætt var um vindpokamál og horfur þeirra með hækkandi sól.

Steinþór spurðist fyrir um flugkomuhugmynd sem rædd var á síðasta aðalfundi en af henni er ekkert nýtt að frétta, kostnaður við bílastæði og tjaldsvæði veldur því að málið verður ekki skoðað í óbreyttri mynd á næstu misserum.

Spurt var hver ætti landið sem klúbburinn stendur á. Það er í eigu Reykjanesbæjar en flugmódelfélagið er með ótímabundin samning um afnot af landinu og Seltjörn. Samningur þessi er uppsegjanlegur af beggja hálfu en ef bærinn segir félaginu upp þá þarf sambærilegt eða betra svæði að koma á móti.

Rætt var um vallaraðstöðuna, borð og annað slíkt, félagsmenn sáttir við núverandi ástand og töldu ekki þörf á frekari smíðum.

Klósettmál voru rædd, sagt frá klósetti sem Reykjanesbær hefur verið með við Seltjörnina og því sem kveikt var í við Skógarlundinn í fyrra.

Ákveðið að stefna að því að hafa fasta tíma sem menn hittast út á Arnarvelli, og ef ekki viðrar til flugs þá munu þeir breytast í skraf og kaffidrykkju fundi.

Rætt um að senda markvisst sms á alla félagsmenn þegar stefndi í flugdaga/kvöld. Ekki vitlaus hugmynd en finna þarf ábyrgðarmenn.

Rætt var um þyrlumál í klúbbnum, aðstöðumál og framtíðarhorfur.

Aðalfundarstörfum var svo slitið kl.20:40.

Boðið var upp á veitingar sem stjórnin sá um en einnig mættu nokkrir félagsmenn með góðgæti á fundinn. Með kaffinu var horft á rúmlega eins og hálfs tíma vídeóannál félagsins frá 2008 en Sverrir klippti hann saman úr vídeóefni frá Magnúsi.

Hægt er að sjá myndir frá aðalfundinum í myndasafni Flugmódelfélags Suðurnesja.
Umræður um fréttina (2)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund