03.03.2009 - Aðalfundur Smástundar og marsfundur Þyts

Minni á aðalfund Smástundar sem verður haldin í kvöld 3.mars kl.20 á Kaffi Krús. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf, kosning í stjórn og nefndir og önnur mál. Félagsmenn eru hvattir til að sýna samstöðu og mæta.

Marsfundur Þyts verður haldinn fimmtudagskvöldið 5.mars nk. og hefst hann kl.20 í Vinnuskóla Hafnarfjarðar í Hrauntungu. Sverrir Gunnlaugsson kynnir rafeindabúnað fyrir stærri módel. Steinþór Agnarsson kemur með sína víðflognu Katana flugvél. Einnig verður hægt að nálgast kók og prins gegn vægu gjaldi.
Umræður um fréttina (0)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund