05.03.2009 - Nýr íslenskur flugþáttur að hefjast

Mánudaginn 9.mars nk. hefst nýr íslenskur þáttur um grasrótina í fluginu á sjónvarpsstöðinni ÍNN.

Þetta er þáttur sem ætti að kæta flugáhugamenn í skammdeginu.Þættina gera Snorri Bjarnvin Jónsson og Dagbjartur Einarsson hjá dabbfilms. Farið verður um víðan völl og viðtöl tekin við flugáhugamenn sem una grasrótinni. Þættirnir verða sýndir á mánudögum fram eftir vetri á ÍNN.

Hægt er að sjá kynningarbút á YouTube.

Ef menn geta ekki fylgst með ÍNN í viðtækjunum hjá sér þá er mjög líklegt að hægt verði að nálgast þættina á heimasíðu stöðvarinnar.
Umræður um fréttina (17)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund