07.05.2009 - Lyklaskipti á Hamranesi

Nú er komið að því að skipta um lykla á Hamranesi þ.e.a.s. lykla að hliði og húsi. Það verður gert næstkomandi miðvikudag 13. maí. Þeir sem greitt hafa félagsgjald fyrir 2009 fá lyklana senda ásamt félagskirteini. Þeir sem ekki hafa greitt fyrir árið 2009 eru hvattir til þess að greiða sem allra fyrst til þess að koma í veg fyrir óþægindi (komast ekki inná svæðið). Það er líka ákaflega þæginlegt að láta taka út af greiðslukorti léttar mánaðalegar greiðslur fyrir ársgjaldið.

Næstkomandi miðvikudagskvöld er að sjálfsögðu klúbbkvöld hjá okkur á Hamranesi þá geta þeir sem vilja setja árgjaldið inná Visa/Euro- kort gengið frá því hjá gjaldkera.

Sjáumst sem allra flestir næstkomandi miðvikudagskvöld á Hamranesi.
Umræður um fréttina (0)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund