11.07.2009 - Fjölþrautamót að baki

Fjölþrautamót Böðvars var haldið á Hamranesi í dag og var fínasta þátttaka en níu keppendur voru mættir til leiks ásamt þó nokkrum áhorfendum. Nokkrar keppnisgreinar voru á dagskrá, lendingarkeppni, marklending, tímaflug, stangarflug og baunaflug. Í hádeginu grillaði Steinþór pylsur ofan í mannskapinn og var þeim vel tekið af svöngum keppendum og öðrum viðstöddum.

Talsvert sást af tilþrifum hjá flugmönnum í dag og þá sérstaklega í stangarfluginu.

Lesa meira...
Umræður um fréttina (10)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund