
Dagurinn byrjaði með algjörri blíðu og var skundað upp á Tungubakka með tilhlökkun fyrir komandi degi. Fyrstu menn voru mættir um kl.9 og var hvergi slegið af fyrr en rúmlega 15 þegar smá skúr kom og menn ákváðu að láta gott heita.
Í millitíðinni var ýmislegt brallað, þotuflug, túrbóprop, samflug á 1/3 Piper Cub og svifflugtog svo fátt eitt sé nefnt. Sigurjón Valsson formaður flugklúbbs Mosfellsbæjar sýndi svo listflug upp úr hádeginu á Cap 10 vél sinni TF-UFO.
Einar Páll bauð upp á kaffi, pönnukökur með rjóma, skúffuköku og fleira góðagæti svo engin fór svangur heim og nýttu viðstaddir sér þetta kosta boð. Ljósmyndari frá Morgunblaðiðinu mætti á svæðið og má sjá mynd frá flugkomunni á blaðsíðu 2 í sunnudagsblaði Moggans þann 16.ágúst.
Að sjálfsögðu er hægt að skoða
myndir í myndasafninu og örfáar myndir slæddust líka inn á
Myndastrauminn að venju.