26.08.2009 - Ljósanætur/Fréttavefs -flugkoma 5.september

Ljósanótt 2008
Nú er farið að styttast í hina árlegu Ljósanætur- og Fréttavefsflugkomu en hún fer fram laugardaginn 5.september og hefst kl.10 um morguninn og lýkur kl.15. Að sjálfsögðu verður ekki hætt að fljúga þá ef veður verður gott.

Sunnudagurinn 6.september er svo til vara ef veður verða válynd.

Það er alltaf mikið fjör og mikið um flug á þessari síðustu stóru samkomu módelsumarsins ár hvert og eru módelmenn hvattir til að fjölmenna og taka þá í flugkomunni.

Hægt er að sjá myndir frá fyrri flugkomum í myndasafni FMS.
Umræður um fréttina (25)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund