05.09.2009 - Ljósanæturflugkoma að baki

Eftir góða næturrigningu sem hreinsaði loftið og svæðið þá rann upp Ljósanæturdagurinn mikli. Veðrið var mjög gott, nánast logn og örfáir dropar kláruðu að koma niður fyrsta klukkutímann af flugkomunni. Veðrið hélst svo þurrt fram til ca. 15 en þá fóru að koma skúrir með nokkuð reglulegu millibili. Síðustu menn yfirgáfu svo svæðið um 1800.

Mikið var flogið og skemmtu viðstaddir sér vel. Góður rómur var gerður að veitingunum og var ekki mikið afgangs af þeim 60 samlokum og 120 kexkökum sem í boði voru.
Umræður um fréttina (33)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund