28.09.2009 - Inniflug í vetur

Flugmódelfélag Suðurnesja ætlar að hefja inniflug nú í vetur, helst á föstum tíma í Reykjanesbæ, af samtölum við félagsmenn og aðra virðist vera mikill áhugi fyrir þessu jafnvel þó greiða þurfi nokkrar krónur í aðstöðugjald. Ekki verður þó farið í að ganga frá húsnæðismálum fyrr en ákveðinn hópur manna verður klár með módel en vilyrði hefur þó fengist fyrir húsnæði.



Þeir sem áhuga hefðu á að vera með í þessu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við formann félagsins og láta hann vita af sér og hvaða módel á að nota. Ekki er skilyrði að vera félagsmaður í FMS heldur er þetta hugsað fyrir alla áhugasama módelmenn.

Umræður um fréttina (25)
Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Flugmódelklúbburinn Smástund