Frábær þátttaka var en 10 flugmenn mættu til leiks í kvöld og skemmtu sér konunglega. Keppnin gekk að mestu vandræðalaust en Guðjón náði ekki að klára þar sem XFire tók upp á þeim dónaskap að klappa saman vængnum í þriðju umferð. Gústi var ræstur síðastur í loftið þar sem hann braut annan hjólalegginn upp úr vængnum hjá sér rétt fyrir keppnina og ég lét hann svo fljúga allar þrjár umferðirnar hverja á eftir annari. Sem var líka eins gott því í lendingunni lét hjólastellið frekar illa eins og sjá má hér að neðan.
Ekki var annað að sjá en að menn væru ánægðir með kvöldið og þakka ég mönnum kærlega fyrir þáttökuna. Hægt er að skoða myndir í myndasafni FMS og svo eiga eflaust einhverjar fleiri eftir að koma hér inn.
Og röðin:
1. Böðvar Guðmundsson
2. Eysteinn H. Sigursteinsson
3. Frímann V. Frímannsson
4. Gunnar M. Magnússon
5. Ágúst Borgþórsson
6. Sigurður Sindri Magnússon
7. Ólafur Ólafsson
8. Ólafur Magnússon
9. Magnús Kristinsson
10. Guðjón Halldórsson
Þeir voru sáttir að leikslokum.
Icelandic Volcano Yeti
Offline
Offline
Fleiri myndir sem segja allt sem þarf. Sjáið efstu myndina. Óveður á höfuðborgarsvæðinu og þrumuský yfir Hellisheiði, en blíða á Arnarvelli, skrýtið! Frábært kvöld og takk fyrir komuna allir!
kv
MK
Síðast breytt af maggikri (27-05-2009 02:12:39)
Offline
það var gaman að sjá þetta
Síðast breytt af Ljoni (06-06-2009 03:41:41)
K.v Lejon þór pattison
S:618-9236
Offline
Offline