Íslandsmót F3F og F3B
Staðsetning: | Sjá lýsingu |
Dags: | 28.06.2008 |
Tími: | 10:00:00 |
Lýsing: | Íslandsmót í módelsvifflugi helgina 28.-29. júní 2008. Um er að ræða tvær keppnir og er nú eins og gengur allur gangur á hvernig það hefur gengið að ljúka báðum, þar sem við erum mjög háðir veðri og þess vegna þarf að vera hægt að færa staðsettningu án mikils fyrirvara, því er nauðsynlegt að þeir sam ætla að taka þátt, keppendur, áhorfendur og þeir sem gefa kost á sér sem starfsmenn láta undirritaða vita af sé svo hægt sé að hafa samband vegna breyting. Hástart F3B. Höfum haldið þessa keppni undanfarin ár á gamla flugvellinum í Gunnarsholti. Erum búnir að biðja um leyfi til að vera þar í ár, en ég veit ekki hvort það er staðfest. Það hefur oftast verið einhver hluti hópsins sem hefur farið austur á föstudegi, slegið upp tjöldum og átt góða kvöldstund. Hangflug F3F. Drauma staðurinn fyrir þessa keppni er Hvolsfjall og gengur það í SV átt (hafgola). Ef við höfum góð skilyrði og nokkra sarfsmenn tekur þessi keppni stuttan tíma. Heimsmetið í að fljúga þessa 10 x 100 m er undir 30 sekúndum. Þurfum helst að ná að minsta kosti 5 umferðum. Nánari upplýsingar gefur svifflugsnefnd Þyts. Frímann – 899 5052 Guðjón - 825 8248 Hannes – 825 5430 |