Þing Flugmálafélags Íslands
Staðsetning: | Fræðslumiðstöð Flugstoða |
Dags: | 28.02.2009 |
Tími: | 14:00:00 |
Lýsing: | Ágætu aðildarfélög Hér með er boðað til ársþings Flugmálafélags Íslands. Þingið verður haldið kl.14:00 laugardaginn 28. febrúar 2009 í Fræðslumiðstöð Flugstoða (Norðurenda Slökkvistöðvar Rvk-flugvallar). Tillaga verður gerð um breytingar á lögum tengdar breyttri tímasetningu þings, sjá fylgiskjal. Í 6 grein laga félagsins segir um fjölda þingfulltrúa: Fjöldi fulltrúa skuldlausra félaga er rétt eiga á setu á þingi FMÍ er þannig ákvarðaður: 6.1. Hvert félag hefur rétt til að senda fulltrúa eftir félagafjölda. 5 til 15 félagar 2 fulltrúar 16 til 30 félagar 3 fulltrúar 31 til 60 félagar 4 fulltrúar 61 til 100 félagar 5 fulltrúar 101 og fl. félagar 6 fulltrúar 6.2. Stjórnarmenn Flugmálafélagsins. 6.3. Stjórnarmenn deilda félagsins. 6.4. Heiðursfélagar. 6.5. Aukafélagar hafa rétt til setu eins fulltrúa á þing FMÍ. Hver fulltrúi á þinginu fer aðeins með eitt atkvæði. Í 7. grein laganna segir um dagskrá Þingsins Þingsetning forseta Flugmálafélagsins Kosning Þingforseta og ritara Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins frá síðasta þingi. Skýrslur sérgreinadeilda um starfsemi þeirra frá síðasta þingi. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram. Lagabreytingar. Kosning forseta og sjö meðstjórnenda. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga. Ákvörðun árgjalds. Önnur mál Þingboðið er sent á þá forsvarsmenn aðildarfélaganna sem við höfum upplýsingar um. Vinsamlegast komið boðum til stjórnarmanna ykkar um þingið eða látið okkur vita ef vandkvæði eru á því. Fyrir hönd stjórnar FMÍ Kristján Sveinbjörnsson * * * * * Breytingar á eftirtöldum lagagreinum verða afgreiddar á fundinum. 5.gr. Þing Þing FMÍ skal halda fyrir lok mars ár hvert og hefur það æðsta vald í málefnum félagsins. Til þess skal boða með a.m.k. 2. vikna(var: 4.vikna) fyrirvara og er það þá lögmætt. Afl atkvæða ræður úrslitum mála, nema annars sé getið í lögum þessum. 8.gr. Reikningsár Reikningsár félagsins er almanaksárið (var: frá 1.október til 30.september). Endurskoðaðir reikningar félagsins skulu liggja fyrir a.m.k. einni viku fyrir þing. |