Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Módelsmiðja Vestfjarða Flugmódelklúbburinn Smástund

Aðalfundur Þyts


Staðsetning:Tungubakkar
Dags:23.02.2017
Tími:20:00:00
Lýsing:Sjá: https://frettavefur.net/Forum/viewtopic.php?id=9973

Kæri félagi,
Aðalfundur Flugmódelfélagsins Þyts verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar 2017 í félagsheimili flugklúbbs Mosfellsbæjar að Tungubökkum og hefst klukkan 20:00.
Aðalfundur Þyts hefur æðsta vald í málefnum félagsins og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þannig virkan þátt í mótun félagsins.
Við viljum líka hvetja áhugasama um setu í stjórn eða nefndum til að senda póst á stjorn@thytur.is og gefa kost á sér skv.7., 8., 9., og 10. lið dagskrár aðalfundarins.

DAGSKRÁ AÐALFUNDAR
1. Formaður setur aðalfund Þyts.
2. Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins.
3. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
6. Skýrslur nefnda.
7. Kosning gjaldkera skv. 8.gr.
8. Kosning tveggja meðstjórnenda skv. 8.gr.
9. Kosning endurskoðenda.
10. Kosning í nefndir
11. Tillögur um lagabreytingar.
12. Önnur mál.
Undir liðnum önnur mál er ætlunin að taka fyrir flugvallamál á Hamranesi, og kynna fyrir fundinn tillögur að úrbótum á brautum og svæðinu.
Í framhaldi er svo að sjálfsögðu opið fyrir önnur mál.

Kosningarétt og kjörgengi ásamt rétti til fundarsetu á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Atkvæði eru óframseljanleg.
Kosningar skulu vera skriflegar nema fundurinn samþykki annað.
Þeir sem öðlast vilja rétt til fundarsetu verða að hafa greitt félagsgjöld a.m.k. viku fyrir aðalfund.

Kveðja stjórnin.


Til baka í yfirlit