Aðalfundur FMS
Staðsetning: | Gæti breyst |
Dags: | 22.01.2019 |
Tími: | 20:00:00 |
Lýsing: | Aðalfundur Flugmódelfélags Suðurnesja verður haldinn þriðjudaginn 22. janúar kl.20:00 í smíðaaðstöðunni í Hreiðrinu. ATH! Við vekjum athygli á því að sökum mikilla framkvæmdagleði nágranna okkar þá lítur út fyrir að ekki verði nóg um bílastæði við Hreiðrið á þriðjudaginn kemur. Stjórn FMS er að kanna með annað húsnæði og mun senda tölvupóst á félagsmenn ef við þurfum að flytja aðalfundinn. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf. Fundargögn verða birt á vef félagsins þegar nær dregur fundinum en einnig munu félagsmenn fá þau send í vikunni. Fyrir fundinum liggur ein tillaga að lagabreytingu: Núverandi – 9. grein – Stjórn Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum. Formaður, gjaldkeri/ritari, vallarstjóri og tveir meðstjórnendur. Skulu þeir allir sitja stjórnarfundi félagsins. Aðalfundur kýs formann og tvo meðstjórnendur þau ár sem enda á jafnri tölu, en gjaldkera og vallarstjóra þau ár sem enda á oddatölu. Gjaldkeri skal gegna störfum formanns í forföllum hans. Breyting – 9. grein – Stjórn Stjórn félagsins er skipuð fimm mönnum. Formaður, gjaldkeri/ritari, vallarstjóri og tveir meðstjórnendur. Skulu þeir allir sitja stjórnarfundi félagsins. Aðalfundur kýs formann og einn meðstjórnanda þau ár sem enda á jafnri tölu, en gjaldkera, vallarstjóra og einn meðstjórnanda þau ár sem enda á oddatölu. Gjaldkeri skal gegna störfum formanns í forföllum hans. Við minnum á að þetta er pappírslaus aðalfundur og félagsmenn hafa fengið fundargögn send í tölvupósti, ef einhver saknar þeirra er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við gjaldkera félagsins. Kveðja stjórn FMS. |