Flugmódelfélag Akureyrar Flugmódelfélag Suðurnesja Flugmódelfélagið Þytur Módelsmiðja Vestfjarða Flugmódelklúbburinn Smástund

Aðalfundur Flugmódelfélags Suðurnesja


Staðsetning:Arnarvöllur
Dags:11.05.2021
Tími:19:00:00
Lýsing:Aðalfundur FMS verður haldinn á Arnarvelli þann 11. maí nk. og hefst kl. 19. Sem fyrr er um pappírslausan aðalfund að ræða og verða fundargögn send í tölvupósti á félagsmenn þegar nær dregur fundi.

Dagskrá aðalfundar
Kosning fundarstjóra
Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda
Skýrslur nefnda
Kosning stjórnar (vallarstjóri og gjaldkeri)
Tillögur og lagabreytingar
Önnur mál

Í ár þarf að kjósa um vallarstjóra og gjaldkera og liggja tvö framboð frammi þegar þetta er ritað, en aðrir áhugasamir eru hvattir til að gefa kost á sér og geta haft samband við stjórn fyrir aðalfundinn eða gefið kost á sér á fundinum.

Ágúst Borgþórsson tók við sem vallarstjóri af Gunnari M. Magnússyni, sem steig til hliðar í fyrra fyrir seinna kjörtímabil sitt, og hefur Ágúst gefið kost á sér í starfið. Sverrir Gunnlaugsson er sitjandi gjaldkeri og hefur gefið kost á sér aftur.

Kveðja stjórn FMS.


Til baka í yfirlit